Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Kraftur Blóðsins
©19. september Asher Intrater

Á Friðþægingardaginn (Yom Kippur), fór Æðsti presturinn með fórnarblóð inn í hið allra helgasta. Þessi dagur minnir okkur á mikilvægi blóðs Messíasar sem var fórnað fyrir okkur (Hebreabréfið 7-10). Blóð Yeshua (Jesú) hefur miklu meiri þýðingu en líkamlegt blóð Hans sem rann á krossinum (Jóh. 19:34). Andlegur kraftur blóðsins lifir og talar enn í dag (Heb. 12:24).

Blóðið  gefur lögmæti  og framkvæmir sáttmálann. Sáttmálinn er guðdómlegur, óbrjótanlegur samningur. Sáttmálinn er settur fram með orðum. Sáttmáli Guðs við mannkynið er ritað í Biblíunni, bæði “Gamla” og “Nýja” testamentinu. Blóðið innsiglar og undirritar sáttmálann. Sá einstaklingur hefur gefið líf sitt fyrir sáttmálann, tryggir hann þar með. Sál sáttmálsaðilans er í blóðinu (3. Mósebók 17:11)

Þegar Guð gerði sáttmála við Ísraelsmenn, þá stökkti Móse helmingnum af blóðinu á altarið og helmingnum yfir fólkið.

2. Mósebók 24:6, 8
Móse tók helming blóðsins… og stökkti því á altarið
Þá tók Móse blóðið, stökkti því á fólkið og sagði: Þetta er blóð þess sáttmála, sem YHVH hefir gjört við yður og byggður er á öllum þessum orðum.

Blóðið snerti sáttmálann og fólkið. Það eru blessunarorð og orð bölvunar í sáttmálanum. Blóðið framkvæmir þessar blessanir og bölvanir. Blóðið á við um sáttmálann við fólkið og gerir hann virkann. Þegar við trúum á sáttmálann og blóð friðþægingarinnar, þá mun mikill andlegur kraftur leysast út.

Sáttmálinn hefur skilyrði og afleiðingar. Skilmálarnir krefjast fórnarblóðs. Afleiðingin eru blessanir og bölvanir. Þegar við trúum á blóðsáttmálann, breytast bölvanir í blessun, fjárhagur okkar leysist og djöfullinn er sigraður (Opinberunarbókin 12:10-11).

Margir kristnir eru meðvitaðir um kraft blóðsáttmálans varðandi þeirra eigin frelsun. Í sögu Ísraelsþjóðarinnar var sáttmálinn líka sameiginlegur; ekki aðeins fyrir einstaklinginn, heldur þjóðina í heild sinni. Þjóðin myndi rísa eða falla saman; verða blessuð eða bölvuð saman. Ísraelsþjóðin tók við sáttmálanum sem þjóð með yfirlýsingum.

2. Mósebók 24:7
en þeir sögðu: Vér viljum gjöra allt það, sem Drottinn hefir boðið, og hlýðnast því

Þeir virkjuðu sáttmálann með orðum sínum, með trúaryfirlýsingu. Í fagnaðarerindinu sjáum við að fólk framkvæmdi sáttmálann á algjörlega rangan hátt. Þau lýstu yfir algjörri höfnun á Messíasi, og færðu þannig blóð sáttmálans yfir sig sem bölvun í stað blessunar.

Matteusarguðspjall 27:25
Og allur lýðurinn sagði: Komi blóð hans yfir oss og yfir börn vor!

Þeir leystu út kraft blóðsins yfir fjöldann, ekki á þann hátt sem áætlað var, heldur á alveg öndverðan hátt. Þeir færðu eyðileggingu yfir sig, þjóðina og komandi kynslóðir. Musterið var jafnað við jörðu, þjóðinni tortímt og fólkið sent í útlegð.

Ef það var svona mikill kraftur í blóðinu, þegar hann var notaður gegn upprunalegri áætlun, hversu mikið mun gerast þegar blóðið er notað á réttan hátt. (Rómverjabréfið 5:15; 11:12).  Viðsnúningur á krafti blóðsins, mun koma með öfug áhrif. Ísraelsþjóðinni mun verða safnað saman aftur, þjóðin mun taka við Messíasi og konungsríki Ísraels endurreist (Postulasagan 1:6).

Þegar kraftur blóðsins var notaður til illra hluta, var fólkinu okkar dreift á meðal þjóðanna. Þegar kraftur blóðsins verður notaður til góðra verka, mun þjóðin aftur safnast saman í Jerúsalem til að stofnað konungsríki Yeshua (Jesaja 2:2-4; Sakaría 14:16).

Á endatímunum munu leifar trúaðra í Ísrael hrópa eftir blóði Yeshua, ekki til eyðileggingar heldur til endurreisnar. Þegar þessar leifar munu standa frammi fyrir úrslitastundu mun vakning breiðast út og allur Ísrael frelsaður verða (Rómverjabréfið 11:26).

Við lok Friðþægingardagsins hljómar langur shofarhljómur (4. Mósebók 25:9-10). Þetta er sami shofarhljómurinn og mun heyrast við hinn síðasta lúður við burthrifninguna og seinni komuna (1. Þessaloníkubréf 4:16; 1. Korintubréf 15:52). Shofarið á Friðþægingardaginn er tákn. Þegar leifarnar í Ísrael munu hrópa leysist kraftur blóðsins. Það er nauðsynlegt að leifarnar í Ísrael bjóði Messíasi að koma aftur (Matteusarguðspjall  23:37-39). Afleiðingin verður seinni koma Yeshua.

Þrír Messíanskir söfnuðir hittust í einingu í Jerúsalem á Friðþægingardaginn í þessari viku til að fagna hátíðinni. Eftir dag í bæn og föstu, þá hrópuðum við saman í trú, “blóð Hans sé yfir okkur, og yfir börnum okkar og yfir þjóð okkar” og “Blessaður er sá sem kemur í nafni Drottins, Yeshua konungur Ísraels.” Svo létum við lúðurinn hljóma. 

Við biðjum ykkur að standa með okkur í trú að snúa við bölvuninni, og að kraftur blóðsins láti áætlun Guðs með Ísrael ná fram að ganga, einnig fyrir kirkjuna og þjóðirnar.


Tilbaka í greinasafn 2010

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.