
|
Messíanskur
hvítasunnudagur, Ísrael 2010 ©16.maí Asher Intrater Það eru þrír biblíulegir helgidagar á vorin: Pesach, Omer og Shavuot. Pesach, er Páskadagur, þar sem minnst er burtfararinnar frá Egyptalandi og krossfestingar Yeshua (Jesú). Omer eða Sheaf er minningardagur um fyrstu lauf vorsins og upprisu Yeshua. Shavuot er vika Hvítasunnunnar þar sem fagnað er fyrstu ávöxtunum og úthellingu heilags anda. Tímabilið á milli Omer og Shavuot er oft nefnd “talning Omer”. Samkvæmt biblíunni er réttara að segja að við séum að telja “dagana frá Omer” að Shavuot (3.Mósebók 23:15). Það er aðeins eitt Omer. Talning dagana frá Omer-sheaf leggur áherslu á mikilvægi upprisunnar. Þessi 50 daga talning byggir líka upp væntingar fyrir úthellingu Heilags Anda. Þetta er eins og “niðurtalning” á eldflaugarskoti. Yeshua sagði lærisveinunum að halda til í Jerúsalem þar til þeir myndu “íklæðast krafti frá hæðum (Lúkasarguðspjall 24:49)” að þeir yrðu “skírðir með Heilögum Anda” innan fárra daga (Postulasagan 1:5), og að þeir myndu hljóta “kraft” þegar Heilagur Andi kæmi yfir þá (Postulasagan 1:8). Eftirvænting þeirra var mikil. Þeir skildu alveg að þeir voru að telja dagana frá Omer og til þess “stóra dags” þegar úthelling Heilags Anda yrði á Shavuot. Guð skipulagði talningu dagana frá Omer til að styrkja trúanna og eftirvæntinguna til að vera tilbúin að taka á móti Heilögum Anda – þá og nú. Á samkomu í Ahavat Yeshua núna í vikunni, þá bar ég saman tvo atburði, þegar lærisveinarnir fengu úthellingu Heilags Anda og konuna með blóðlátin sem fékk lækningu (Markúsarguðspjall 5). Hún átti hnitmiðaða trú og gat einblínt á lækninguna og það gerði hana móttækilega. Við einblínum í trú á Seinni-hvítasunnuúthellingu hér í Jerúsalem. Hún snerti Yeshua í örvæntingarfulltri trú; við viljum gera það sama en sem hópur. Hún meðtók fyrir sig sjálfa; við viljum meðtaka svo “allur Ísrael megi frelsast (Rómverjabréfið 11:26). “ Guð gaf kraft Heilags Anda á Hvítasunnudag. Hvenær tók Hann kraftinn “til baka?” Svarið er: aldrei. Eldur Heilags Anda stendur okkur til boða í dag á sama hátt og lærisveinarnir fengu að upplifa í Postulasögunni. Þessi andlegi kraftur er jafnraunverulegur og eldur, rafmagn eða kjarnorka sem stjórnast af náttúrulögmálum. Það er lögmál sem stjórnar þessum andlega krafti (Rómverjabréfið 8:2, Jakobsbréf 3:6, Hebreabréfið 6:5, 7:16), alveg eins og það eru náttúrulögmál. Sannur andlegur eldur kemur frá Guði í gegnum Yeshua, með heilagleika með tilgang inní konungsríki Guðs. Innan hefðbundins gyðingdóms er líka talað um að Shavuot sem tími boðorðanna 10. Það er mikil samlíking með eldinum sem kom á Sínaífjall í 2. Mósebók 19 og eldinum í öðrum kafla Postulasögunnar. Trúræknir Gyðingar eru með næturlanga kennslu á Shavuot þar sem Boðorðin 10 eru kennd. Þessi hefð, að vaka alla nóttina, kemur frá tímum Seinna Musterisins. Þetta útskýrir á vissan hátt hvers vegna fjölmargir Orthodox Gyðingar voru úti á götum í Jerúsalem, að morgni Shavuot. Eftir næturvökuna, þá voru þeir móttækilegir fyrir Heilögum Anda. Heilögum Anda var úthellt 5 sinnum í Postulasögunni: Kafla 2,4,8,10,19. Fyrst í öðrum kafla, þar var Heilögum Anda og eldi úthellt í Jerúsalem, á Shavuot yfir Messíanska Gyðinga. Í 4. kaflanum var staðurinn og fólkið það sama, en það gerðist ekki á biblíulegum helgidegi. Í 8 kaflanum var tímasetningin önnur, staðurinn var annar og fólkið var Samverjar, að einhverju leiti Gyðingar. Í 10 kaflanum var Heilögum Anda úthellt yfir heiðingjana, sem komu frá Evrópu en lifðu í Ísrael. Í 19 kaflanum var fólkið heiðingjar og úthellingin átti sér stað utan Ísrael. Í dag stendur öllum sönnum tilbiðjendum Yeshua til boða úthelling Heilags Anda, hvar og hvenær sem er. Ég held samt að fljótlega muni koma sá dagur að eldinum verði úthellt eins og í upphafinu. Eldurinn mun aftur falla á Messíanska Gyðinga í Jerúsalem, tengt hátíðahöldum. Ef þessi eftirvænting á sér líka stað meðal kirkjunnar um allan heim, í öllum þjóðum, þá mun mikil vakning eiga sér stað eins og spámaðurinn Jóel spáði og einnig Símon Pétur (Postulasagan 2:17). Anda Guðs verður “úthellt yfir allt hold” áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. Fyrirbænarefni:
Tilbaka í greinasafn 2010 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |