
| Meint
spilling innan ríkisstjórnar Ísrael ©19. apríl Asher Intrater Það olli miklum óróa í Ísrael, þegar nýlega varð opinber spilling innan ríkisstjórnarinnar, þar sem Uri Lupolinski, borgarstjóri Jerúsalem frá 2003-2008 var bendlaður við, auk margra annarra háttsetrra embættismanna í borgarstjórn Jerúsalem og stjórnarformanni skipulagsnefndar borgarinnar. Rannsókn hefur leitt í ljós fullyrðingar þess efnið að Lupolianski hafi tekið við milljónum dollara í mútugreiðslur, til að tryggja mannvirkjagerð og uppbyggingu verkefnis í suður Jerúsalem sem miklar deilur hafa verið um og kallað er "Holyland." Þessi byggð var samþykkt þrátt fyrir mikil mótmæli almennings og ólöglega fækkun á mörgum nauðsynlegum opinberum byggingum, en það var gert til að auka verðmæti. Á sama tíma og lögreglan rannsakar hvort margir aðrir stjórnmálamenn hafi verið viðriðnir "Holyland" hneykslið, þá er Lupolianski einnig grunaður um að greiða mútur til að tryggja sigur í kosningunni sem borgarstjóri Jerúsalem árið 2003. Enn á ný, sjáum við stjórnarleiðtoga misnota það vald sem Guð hefur gefið þeim til eigin framdráttar. Mjög þekkt og viðurkennd sjálfboðaliðasamtök í Ísrael eru líklega einnig flækt í þetta hneysklismál. "Yad Sarah" (Hönd Söru), var stofnað af Lupolianski sjálfum og telur meira en 6.000 sjálfboðaliða og starfsfólk. Samtökin voru stofnuð árið 1976 og tilgangurinn var að gefa griðarstað þeim sem eru í neyð og jafnvel veikburða. Ef ásakanirnar eru sannar, þá hefur Lupolianski notað "Holyland" og önnur verkefni á þann hátt að stór fjárframlög voru gefin til "Yad Sarah" en soguð þaðan og þannig misnotað fjármálakerfi samtakanna. Spillingin nær alveg til fyrrum forsætisráðherra Ehud Olmert. Hann er nú þegar undir rannsókn vegna annarra spillinga, en nú liggur hann undir grun sem lykilmaður "Holyland" hneyslisins. Þó svo að Olmert neiti ásökunum staðfastlega, og hafnar allri vitneksju um ólöglegt athæfi, þá var uppbygging "Holyland" samþykkt á sama tíma og múturnar áttu sér stað en Olmert var þá borgarstjóri Jerúsalem. Fjölmiðlaumfjöllun af því þegar fyrrum borgarstjóri Uri Lupolianski og fyrrum borgarverkfræðingur Uri Shitrit voru fangelsaðir á þjóðhátíðardaginn hefur hrist uppí borgarstarfsmönnum Jerúsalem. Sumir eru flæktir í hneysklismálið, meðan margir aðrir bíða niðurstöðu rannsóknarinnar. Starfsfélagi Revive Israel, yfir-verkfræðingur í Jerúsalem, sem hefur starfað bæði undir forrystu Olmert og Lupolianski, segir að þetta hneyskli komi ekkert á óvart, í ljósi margra ára ásakanna. Hinsvgar hafar opinberir starfsmenn sem ganga fram í heiðarleika og ráðvendni ekkert að óttast. Reglubundið niðurbrot er nauðsynlegt til að halda jafnvægi milli staðbundinna yfirvalda og þess að beisla persónulegan metnað ótrúaðra borgara, til góðs fyrir almenning. Jóhannes skrifaði, "ótti er ekki í elskunni. Fullkomin elska rekur út óttann. Því að óttinn býst við hegningu en sá sem óttast er ekki fullkominn í elskunni" (1. Jóhannesarbréf 4:18) Við eigum aldrei að gleðjast yfir refsingu og þjáningu annarra, heldur að reyna að vera góð fyrirmynd, lifandi dæmi um þjónslund samkvæmt lögmáli Messíasar. Því miður þá er spilling staðreynd í Mið-Austurlöndum. Við höfum dæmi eins og Saddam Hussein en hann dró til sín um 2 billjónir bandaríkjadala og fjárdrátt Yasser Arafat sem var um 7 billjónir bandaríkjadala. Þrátt fyrir þessa hneykslisfrásögn hér að ofan, þá er það í raun áberandi í Mið-Austurlöndum hversu hátt siðferðið er í Ísrael, það er hátt viðmið og lög sem koma í veg fyrir spillinguna. Þess vegna vegur þetta hneykslismál svona þungt í ísraelsku samfélagi. Það er skrifð um spillingu og óréttlæti í Sálmi 14 Heimskinginn
segir í hjarta sínu: En það er von fyrir þá sem treysta Drottni, 5Síðan
skjálfa þeir af hræðslu Sálmaskáldið notar sterka myndlíkingu til að lýsa því sem spilltir menn færa yfir fátæka og þurfandi. Í annarri þýðingu segir í versi 6 "þér illgjörðarmenn ónýtið áætlun hinna fátæku". Höfum í huga ásakanirnar á hendur Lupolianski varðandi misnotkun á framlögum til "Yad Sarah" sem voru ætluð fyrir fátæka. Samt sem áður er Drottinn athvarf hinna þjáðu. Við fyllums von þegar við lesum síðasta versið í Sálminum: "Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon" Drottinn lofar að þegar allt kemur til alls, þá muni spilling og illska ekki þrífast, en frelsi Hans koma til fólksins. Það er skylda okkar að biðja eins og við erum hvött til í 1. Tímóteusarbréfi 2:1-3: Fyrst af öllu hvet ég til að biðja og ákalla Guð og bera fram fyrirbænir og þakkir fyrir alla menn. Biðjið fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að við fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í guðsótta og siðprýði. Þetta er gott og þóknanlegt Guði, frelsara vorum. Jerúsalem mun verða staðurinn þar sem Yeshua mun búa og þaðan mun hann stjórna jörðinni. Þess vegna er þetta þungamiðja andlegrar baráttu og þarfnast allra þeirra bæna sem möguleiki er á. Þess vegna höldum við áfram að biðja og stöndum á þessu loforði að hjálp berist frá Síon... og að Yeshua verði konungur okkar, frelsari og Drottinn. Tilbaka í greinasafn 2010 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |