Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

 Hvers vegna Helför?
©11. apríl Asher Intrater

Þennan mánudag (12. apríl) er minningardagur Helfararinnar í Ísrael. Þegar við vitnum fyrir fólki þá fáum við oft að heyra: "Ég get ekki trúað á Guð vegna Helfararinnar".

Hér eru yfirlit yfir biblíuleg svör við þessum spurningum:

1.   Alheimssynd - Guð skapaði heiminn fullkominn. Illskan hófst og viðhelds vegna syndar mannkyns og synjunar á hlýðni. (1. Mósebók 3). Það er ekki hægt að kenna Guði um þjáningar heimsins heldur mannkyninu. Yeshua sýndi gott fordæmi um að fólk sem var myrt af Pílatusi væri ekki meiri syndarar en aðrir, heldur að allir þurfa að iðrast. (Lúkasarguðspjall 13:1-5) Fólk er ekki að mestu "gott" og stig frá stigi að þróast í betra ástand. Allir hafa syndgað. Helförin er sönnun þessa biblíulega sjónarmiðs að allt mannkynið er syndarar sem þarfnast iðrunar og náðar.

2.   Gyðingleg synd – Þó furðulegt sé, þá var spáð fyrir um Helförina alveg frá lögmáli Móse.  3. Mósebók 26:33, 38 og 5. Mósebók 28:63-64 fjalla um útlegðina og hræðilega þjáningu Gyðinga sem refsing fyrir syndir okkar.

3.   Syndir heiðingjanna – Við horfum á útlegð og þjáningar Gyðinga sem refsingu frá Guði, en samt sem áður er það sem gerðist í Helförinni og mörgum öðrum atburðum gyðingahaturs EKKI tilskipun Guðs. Guð dreifði okkur meðal heiðinna þjóða vegna synda okkar; en framkoma heiðingjanna í okkar garð, er þeirra synd. Sakaría 1:15  - ég er sárgramur þeim þjóðum sem hafa verið andvaralausar. Gremja mín var minni áður, en þó juku þær stórum á böl sitt. Reiði Guðs er meiri gagnvart heiðnum þjóðum vegna gyðingahaturs þeirra, en reiði Hans gagnvart Gyðingum fyrir syndir þeirra sem eru upphafleg ástæða útlegðarinnar.

4.   Staðgengilsguðfræðin – Rómverjabréfið 11 skýrir frá því að það er áframhaldandi hlutskipti fyrir Gyðinga sem útvalið fólk. Þessu var hafnað af Kaþólsku kirkjunni á Miðöldum og af siðbótarstefnu Lúthers. Afneitun þess að Gyðingar eru útvaldir innan kristinnar guðfræði varð þess valdandi að gyðingahatur var réttlætt meðal kristinna þjóða. Jafnvel þó svo að flestir sanntrúaðir kristnir hafni gyðingahatri nú á dögum, þá varð staðgengilsguðfræðin þess valdandi að margir kristnir þögðu á tímum Helfararinnar og sumir jafnvel störfuðu með Nasistum.

5.   Afneitun Messíasar – Endurkoma Messíasar á að vera blessun fyrir Ísrael og allar þjóðir. Afneitun okkar á Yeshua snéri miklu af þessari blessun til bölvunar. Lúkasarguðspjall 19:44 - Þeir munu leggja þig að velli og börn þín sem í þér eru... vegna þess að þú þekktir ekki þinn vitjunartíma.“ Í raun þá lögðum við bölvun á okkur sjálf. (Mattheusarguðspjall 27:25).

6.   Rabbíar afneita Síonisma – Fyrsta Aliyah (Innflutningur til Landsins) nútíma Síonisma hófst árið 1881, nærri 60 árum fyrir Helförina. Ég trúi því að Guð hafi verið að kalla á Gyðinga að flytja frá hættunni í Evrópu og fara annað hvort til Ameríku eða Ísrael. Þeir sem hlustuðu, björguðust. Hið sorglega er að Rabbíar, leiðtogar í Austur-Evrópu stóðu gegn Síonismanum sem fölskum boðskap, og sögðu fólkinu að fylgja þessum boðskap ekki. Afleiðingin var sú að fjölda fólks var slátrað

7.   Afneitun húmanista á Síonisma – Theodore Herzl byrjaði að tala um ríki Gyðinga árið 1897 þegar hann varð vitni af Gyðingahatri Alfred Dreyfus. Margir frjálslyndir Gyðingar í Vestur-Evrópu hefðu bjargast frá skelfingu Helfararinnar ef þeir hefðu einnig farið til Ameríku eða Ísrael. Þeir voru um kyrrt vegna tálvonar um auðlegð og lyginnar um frjálslyndan veraldlegan húmanisma, sem afneitaði yfirvofandi hættu. Jafnvel í dag, þá standa "stjórnmálaleg réttindi" í veginum fyrir grundvallar-vörn Gyðingaríkis gegn ógninni af nútíma Helför, í höndum Íslams Jihad.

8.   Þjáning Réttlátra – Í öllum kynslóðum þá þjást hinir réttlátu, allt þar til þjóðfélagið hefur náð þeirri ráðvendni að launa þeim.  2. Tímóteusarbréf 3:12 – Allir, sem lifa vilja guðrækilega í samfélagið við Krist Jesú, mun ofsóttir verða. Allt frá tímum Kain og Abel hafa hinir réttlátu þjáðst, frá tímum spámanna og ættfeðra, allt til kristinna og múslima í heiminum í dag. Kommúnisminn í Kína, undir stjórn Mao, drap miklu fleiri en Nasistarnir. Tyrkir drápu fjölda fólks í Ameníu-Helförinni.

9.   Þjáning hinna útvöldu - Það er leyndardómsfull hliðstæða milli krossfestingar Yeshua sem Messíasar og þjáninga Gyðinga sem hinna útvöldu. Jafnvel þó svo að okkar fólk hafnaði Yeshua, vegna synda okkar, þá var opinberunin að hluta til "hulin sjónum okkar"  - Lúkasarguðspjall 19:42. Útlegðin var ekki einungis refsing, heldur guðdómleg áætlun til að "heiðingjunum muni hlotnast hjálpræðið" - Rómverjabréfið 11:11.  Útlegð og þjáning Gyðinga er til lausnar fyrir heiðingjana. Þetta er hliðstætt þjáningum trúboða og kristniboða sem boða fagnaðarerindið.  (Kólossubréfið 1:24).

10.  Satan gegn endurkomunni – Eftir syndafall Adams og Evu, þá lofaði Guð að koma með „sæði“ sem myndi eyða Satan (1. Mósebók 3:15). Þetta sæði var Yeshua. Hann átti að koma sem afkomandi Abrahams (1. Mósebók 22:18). Þess vegna hafa öfl satans (Faraó, Haman, og Heródes) alltaf reynt að drepa Gyðingana. Þessar árásir gegn Gyðingum hefðu getað endað þegar Yeshua fæddist. Hins vegar lengdi Yeshua loforðið með seinni komunni. Mattheusarguðspjall 23:39 – Héðan af munuð þér eigi sjá mig fyrr en þér segið: „blessaður er sá sem kemur...“ Helförin og Jihad Íslamista er satanísk aðgerð til að hindra Gyðinga í að uppfylla endatíma-hlutskipti sitt sem er að færa Messías aftur inní þennan heim (og þá mun djöfullinn verða bundinn [Opinberunarbókin 20:2]).


Tilbaka í greinasafn 2010

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.