Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Revive Israel – Fréttir af starfinu
©1. febrúar Asher Intrater

Asher er á ferðalagi þessa vikuna þar sem hann kennir við skólann Gateways Discipleship School á Kýpur. Til að upplýsa ykkur betur í hvað fjármunir ykkar og fyrirbænir fara í, þá höfum við í Revive Israel tekið saman fréttir af starfsemi okkar og áhugaverðum hlutum sem eru að gerast í heiminum.

Trúboð

  • Hópur á vegum Revive Israel boðaði fagnaðarerindið til "N", "Na", "M", "Y", "B", og margra annarra, ásamt því að heimsækja Hadassah Ein Kerem sjúkrahúsið til að boða slösuðum Ísraelum fagnaðarerindið.

Lærisveinar

  • Vinna er hafin við áætlun vorannar Sha'ar Hakerem.

Styrking Líkamans

  • Í margar vikur þá hafa vantrúaðir Ísraelar heimsótt söfnuðinn. Einn ungur maður er að taka á móti mikilli lækningu en hann var djöfladýrkandi.
  • Hópurinn okkar þjónaði á Makor HaTikvah (skóla fyrir trúaða) með því að helluleggja göngustíga, mála, þrífa geymslur, skipuleggja skjalavistun og garðyrkju.
  • Við þjónuðum líka á Dugit (trúboðsstöð í Tel Aviv) með því að flytja matargögn frá birgja yfir á nýopnaða dreifingarmiðstöð, máluðum, settum saman hillur og þrifum.
  • Asher og Eddie hittust ásamt fleiri ísraelskum pastorum til fyrirbæna og samræðna.

Verkefnið Hæðir Júdeu

  • Þetta er eining sem er kölluð "Brautryðjendur á viðskiptasviði - Fjárfestingar og stjórnun" sem styður við uppbyggingu trúaðra Ísraela í viðskiptaheiminum.

"Orðið gengur fram á Síon”

  • "U og V" ferðuðust til Evrópu og töluðu og mynduðu tengsl við samfélag trúaða í Sviss og Frakklandi.
  • "U" er núna þátttakandi á ráðstefnu varðandi trúboð meðal Múslima.
  • Í samstarfi við Kim stjórnanda, þá leiddi Revive Israel ráðstefnu fyrir kórenskra og japanska trúaða einstaklinga. Það var mikill árangur af þessari ráðstefnu þar sem þrír dagar voru skipulagðir með kennslu, tilbeiðslu og samfélagi.
  • Asher fór í viðtal í ísraelskan sjónvarpsþátt sem fjallar um menntamál.

Hópastarf og annað tengt starfinu

  • Hópurinn í Revive Israel varði samtals 418 klukkustundum í bæn og tilbeiðslu síðasta mánuð.
  • Við höfum fengið viðbótar pláss fyrir miðstöðina okkar. Bænaherbergið verður fært yfir í viðbygginguna í þessari viku. Það sem áður var lofgjörðarherbergi verður notað undir skrifstofur.

Sérstök beiðni um fyrirbæn

  • Sjónvarpsviðtalið við Asher gekk mjög vel og honum fannst Drottinn leiða sérhvert orð sem hann talaði. Viljið þið halda áfram að biðja fyrir
    • Stórum áhorfendahóp þegar þátturinn verður sendur út
    • Jákvæðum viðbrögðum áhorfenda
    • Fleiri opnum dyrum fyrir Messíanska leiðtoga Gyðinga til að tala í fjölmiðlum.
  • Vantrúaðir Ísraelar hafa verið að heimsækja Ahavat Yeshua og við biðjum um gegnumbrot þar sem heimsóknirnar verða fleiri og að sérhver muni upplifa Guð á svo áhrifamikinn hátt að folk taki við Yeshua sem Messíasi.
  • Tæknin, sérstaklega tölvupóstur hefur verið til vandræða og það er samhljóða álit allra að vandamálið sé andlegt en ekki tæknilegt. Biðjið að öll tæknimál virki á réttan hátt og öll kerfisvandamál leysis algjörlega og á réttann hátt.

Fréttir úr heiminum

Andlát Mahmoud al-Mabhouh

Mahmound al-Mabhouh, vopnasmyglari, yfirmaður í her Hezbolla og skæruliði Írans í byltingarsamtökum í Sýrlandi fannst látinn á hótelherbergi í Dubai. Hamas hafa ásakað Mossad um morðið. Hann var ábyrgur fyrir flestum langdrægum eldflaugum sem var smyglað inná Gasa ströndina. Mabhouh spilaði einnig lykilhlutverk í mannráni og dauðsföllum 1989 á tveim ísraelskum hermönnum þegar fyrsta intifada stóð yfir – þeir hétu Sgt. Avi Sasportas and Pvt. Ilan Sa’adon. http://www.jpost.com/MiddleEast/Article.aspx?id=167344

Íranskir mótmælendur aflífaðir

Tveir meðlimir stjórnarandstöðunnar voru hengdir í Íran; Arash Rahmanipour og Mohammad Reza Alizamani. Lögfræðingur þeirra staðhæfir að stjórnvöld séu að reyna að koma í veg fyrir útbreiðslu stjórnarandstöðunnar með kúgunaraðgerðum. Fimm aðrir sem tóku þátt í mótmælunum í júní þegar kosið var til forseta, hafa fengið dauðadóm.  

http://www.dailymail.co.uk/news/worldnews/article-1246749/Iran-executes-men-arrested-presidential-election-unrest-waging-war-God.html

Aukning Gyðingahaturs árið 2009

Samkvæmt ársskýrslu 2009 sem gefin er út af Coordination Forum for Countering Anti-Semitism (CFCA)  og var kynnt af stjórnanda samtaka Gyðinga, Natan Sharnasky, þá var aukning á gyðingahatri og ofbeldi í Vestur-Evrópu.

Flestar árásirnar áttu sér stað í byrjun árs 2009, strax í kjölfarið á aðgerðinni sem kölluð er Operation Cast Lead á Gasaströnd. Mesta aukningin var í Frakklandi, þar á eftir kom Bretland og Holland.

Alþjóðlegur minningardagur Helfararinnar

Minningarathöfn til heiðurs alþjóðlegum minningardegi Helfararinnar var haldinn á miðvikudaginn í Auschwitz fangabúðunum í Póllandi. Bæði forsætisráðherra Ísraels Benjamin Netanyahu og forsetinn Shimon Peres héldu tölu á hebresku en meðal áheyrenda var forseti Póllands Lech Kacznski, forseti Evrópuþingsins og meðlimir MK í Ísrael. Lech Kaczynski forseti fór yfir þau grimmdarverk sem voru framin og sagði “Gyðingarnir voru drepnir eingöngu vegna þess að þeir voru Gyðingar”.  Hann varaði einnig við því að “Fyrst þetta gat gerst, þá getur þetta gerst aftur”.http://www.ynetnews.com/articles/0,7340,L-3840535,00.html


JOS, Nígería

Eftir að ísraelskir trúboðar voru sendir til Nígeríu þá hafa mörg ofbeldisverk verið framinn milli Kristinna og Múslima. Í síðustu viku voru 326 einstaklinga drepnir í Jos. Lögreglan á staðnum segir að ofbeldisverkin hafi byrjað þegar Múslimar kveiktu í kirkju, en leiðtogar Múslima hafna því. Múslimar halda því fram að ofbeldið hafi byrjað vegna ágreinings um endurbyggingu heimilis Múslima í hverfi sem er undir yfirráðum kristinna og var eyðilagt í nóvember 2008.

Ali Hassan al-Majeed, betur þekktur sem “Efnavopna Ali” var hengdur

Ali Hassan al-Majeed, 68, íranskur hershöfðingi sem varð þekktur undir nafninu “Efnavopna Ali” fyrir að skipa fyrir um eiturefna-gas árás á Kúrda, var hengdur í Bagdad 25. janúar 2010, eftir að sérstakur dómstóll gaf út fjórða dauðadóminn yfir hann fyrir glæpi gegn mannkyninu meðan frændi hans Saddam Hussein var við völd.

Um það bil 5.000 Kúrdar létu lífið og um 10.000 aðrir voru slasaðir þegar íraskar herþotur köstuðu út efnasprengjum sem innihéldu sinnepsgas, taugagas og önnur eiturefni. Þetta var versta eiturefnaárás á saklausa borgara í sögunni.


Tilbaka í greinasafn 2010

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.