
|
Einkenni
villutrúarbragða Sérkennileg villutrúarregla var opinberuð í Ísrael núna í vikunni, leidd af manni sem heitir Goel Ratson. Hann var með um 20 konur sem eiginkonur eða hjákonur. Þær og börnin þeirra lifðu í einskonar sálfræðilegri þrælkun. Það eru mörg villutrúarbrögð í heiminum í dag, og það er skynsamlegt að þekkja einkenni þeirra, til þess að geta forðast þau. Við skulum skipta einkennum villutrúrarbragða í fimm flokka: 1. Forysta með yfirráð - Það sem fyrst einkennir villutrú er óhófleg yfirráð leiðtogans. Hann hefur svo mikil yfirráð að hann stjórnar nánast öllu í lífi fylgjenda sinna. Leiðtoganum er fylgt í blindni án fyrirvara. Í biblíulegu samfélagi, þá er alveg skýrt hver er leiðtogi, hver er með andlegt vald. Hins vegar er jafnvægi í leiðtogastöðunni með tilkomu öldunga og annarra meðlima og leiðtoga og það er siðgæðisvitund. Ég fór í þessa hluti í bókinni minni Samfélag Sáttmálans - Covenant Relationships , undir fyrirsögninni "Leiðtogar - formennska með meirihluta." Auk þess, þá er valdsvið leiðtogastöðu takmarkað við ákveðin svið. Leiðtogasvið safnaðar virðir valdsvið fjölskyldunnar, vinnustaðarins og ríkisstjórnar. 2. Stjórnandi framkoma – Í söfnuði okkar, þá gefa andlegir leiðtogar leiðbeiningar um það hvernig við getum lifað samkvæmt meginreglum biblíunnar, í heilagleika, heiðarleika og trúfesti. Hins vegar eru engin fyrirmæli um hvernig hægt er að ráðskast með líf einstaklings. Öldungar gefa ráð varðandi ýmis málefni, en valið er hjá einstaklingnum, um hvað gert er við ráðleggingarnar. Það er mikill munur á milli siðferðis og stjórnsemi. Í villutrú þá er nánast öllu lífi einstaklings stjórnað. Fólki er sagt hverjum það á að giftast, hvernig á að klæðast, hvað á að borða o.s.frv. Svona trúarvaldbeiting finnst innan trúarhópa ultra-Orthodox Gyðinga. Villutrúarbrögð reyna oft að ná stjórn yfir fjármálum, tekjum og gjöldum, einstaklings. Í biblíulegum söfnuði er meðlimum kenndar ákveðnar meginreglur varðandi gjafmildi og heiðarleika, en meðlimum er algjörlega frjálst að ákveða hvað og hvernig er gefið. 3. Lokað samfélag - Í öllum biblíulegum söfnuðum þá er okkur sagt að aðskilja okkur synd heimsins, eins og losta og græðgi. Hins vegar eru meðlimir villtrúarsafnaða lokaðir af, þannig að þeir tapa tengslum við fjölskyldur og samfélagið. Yeshua (Jesú) kenndi okkur að (vera “í” heiminum en ekki “af” heiminum. (Jóhannesarguðspjall 17:15-16). Við eigum að aðskylja okkur frá syndinni en ekki frá heilbrigðu samfélagi við fólk utan safnaðarins. Sérhver söfnuður hefur ákveðnar áherslur og sérhver staðbundinn söfnuður sér sjálfan sig sem hluta af stórum alþjóðlegum líkama trúaðra með ýmsar áherslur. Í villutrúarsöfnuðum eru meðlimir hræddir við að fara. Það er mikill þrýstingur að yfirgefa ekki söfnuðinn , jafnvel þó svo að meðlimur vilji fara. Meðlimum er kennt að söfnuðurinn sé betri en nokkur annar í heiminum. Þrýstingi er oft beitt með því að koma inn sektarkennt og fyrirdæmingu. 4. Vitsmunalega lokaður – Við trúum því að biblían sé eina rétta viðmið sannleikans í heiminum. Hins vegar trúum við því að enginn einn einstaklingur eða hópur hafi einkaleifi á að skilja Ritningarnar. Við hvetjum til náms, veraldlegs og trúarlegs; andlegs og faglegs. Eitt af einkennum villutrúar er sú, að bannað er að kynna sér málefni utan hópsins. Meðlimum er oft sagt að þeir hafi æðri opinberun en aðrir; að engin utan hópsins skilji þá, og að enginn utan hópsins geti fengið aðgang að þessum leyndu opinberunum. Við trúum því að Heilagur Andi gefi opinberanir og að þær opinberanir séu handa öllum og eru byggðar á því sem stendur í Ritningunum. 5. Sjálfseyðingarhvöt – Villutrúarbrögð hafa ekki einungis yfirráð yfir hegðun meðlima, heldur mun sú hegðun fyrr en seinna leiða af sér eyðingu og óheilbrigði. Ritningarnar segja okkur að lifa í fórnandi kærleika til þess að hjálpa og blessa aðra. Yeshua sagði okkur að Hann kom til að gefa okkur "líf í fullri gnægð" en djöfullinn kemur til að "stela, slátra og eyða" (Jóhannesarguðspjall 10:10) Þegar djöfullinn freistaði Yeshua, þá sagði hann honum að kasta sér fram að þaki musterisins. Það er illska. Kennsla sem við fáum úr biblíunni er heilbrigð vegna þess að Guð skapaði okkur með líkama og sál; það er rökrétt því Guð skapaði okkur með heila; siðferðislegt því við erum sköpuð með samvisku. Samantekt: Í söfnuði okkar höfum við þróttmikið andlegt líf, m.a. yfirnáttúrulegar upplifanir eins og þær sem við lesum um í Biblíunni. Við erum kappsfull og áköf um trú okkar og glöð segjum við öðrum frá. Hins vegar höfnum við öllum einkennum villutrúar. Við erum með há viðmið varðandi heilagleika og hlýðni, við leitumst við að hafa jafnvægi í öllum hliðum lífsins og virðum frelsið í vali og samvisku þátttakenda. Viðbót: Hjálpum Haiti Við, eins og allir aðrir erum með bænabyrgið fyrir þeim sem þjást á Haiti. Ísrael hefur sent þjálfaða hjálparsveit sem samanstendur af 220 einstaklingum, þ.m.t. læknar og björgunarfólk. Bandaríkin hafa þegar sent yfir 2.000 aðstoðarfólk og skuldbunið sig fyrir meira en milljón dollara. Það er vinsælt í heiminum í dag að fordæma Ísrael og Bandaríkin. Hins vegar er það svo, að þegar á reynir eru engar þjóðir jafn örlátar en þessar tvær. Tilbaka í greinasafn 2010 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |