Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Hann er að koma
©18. janúar Asher Intrater

Í guðspjöllunum talaði Yeshua (Jesús) oft um seinni komu sína. Stundum talaði Hann í dæmisögum (sáðmaðurinn, fiskinet í sjó, vitrar og óvitrar meyjar, brúðkaupsveisla, 10 talentur, leigan á víngarðinum, geitur og lömb o.sv.frv.).

Í þremur tilfellum, talaði Hann opinskátt um endurkomu sína í dýrð: 1) í staðhæfingum varðandi krossfestinguna, 2) á Olíufjallinu og 3) fyrir ráðinu.

1) Matteus 16:27 – Mannssonurinn mun koma í dýrð föður síns með englum sínum, og þá mun hann gjalda sérhverjum eftir breytni hans.

Í andstöðu veikleikans við krossfestinguna, þá mun Yeshua koma aftur í krafti og dýrð. Hann mun koma með englaher – forréttindi sem Hann leifði sér ekki áður, (Matt. 26:53). Hann mun koma til að dæma, andstaða krossins, þar sem hann tók dóminn á sig.

2) Matteus 24:30-31 – Þá mun tákn Mannssonarins birtast á himni, og allar kynkvíslir jarðarinnar hefja kveinstafi. Og menn munu sjá Mannssoninn koma á skýjum himins með mætti og mikilli dýrð. Hann mun senda út engla sína með hvellum lúðri, og þeir munu safna hans útvöldu úr áttunum fjórum, himinskauta milli.

Hér sjáum við aðaláherslu seinni komunnar: dýrðarkraftur, englaher, og hinum útvöldu safnað saman. Kennslan á Olíufjallinu er undirstöðukennsla Yeshua um endatímana. Í þeirri kennslu líkir Hann seinni komu sinni við Nóaflóðið og eyðingu Sódómu.

Hann vitnar líka mikið í spádóma Gamla Testamentisins (Tenach)  varðandi endatímana (Daníel, Jóel, Sakaría, Jesaja, Jeremía ofl. ), og sýnir þannig hversu endurkoma Hans er í samræmi við það sem hebresku spámennirnir kenndu.

3) Matteus 26:64 – Upp frá þessu munuð þér sjá Mannssoninn sitja til hægri handar máttarins og koma á skýjum himins.

Þegar Yeshua var fyrir ráðinu var Hann spurður hvort Hann væri Messías, sonur lifanda Guðs. Svar Hans var: eins og sálmur 110 lýsir því hvernig Messías situr til hægri handar Honum þar til óvinir Hans eru undir fótum Hans, og eins og Daníelsbók 7 lýsir mannssyninum, sem kom í skýjum himinsins til hins aldna og var leiddur fyrir hann. Hann talaði við þá sem æðstu presta, lét þá útskýra eigin ritningar.

Tíminn er fyrir höndum

Aldrei fyrr í mannkynssögunni hafa allir nauðsynlegir hlutir verið til staðar, sem þarf til að uppfylla spádóma endatímanna.  Það er alheims-bankakreppa. Það er ríkjasamband með öllum þjóðum heims í einni stofnun (Sameinuðu þjóðirnar). Það eru alheims-trúarbrögð með það að markmiði að eyða Ísrael og jafnvel halda því fram að hver sá sem drepur Gyðing, sé að þjóna Guði (Íslam). Það er ákveðinn hópur strangtrúaðra Orhodox Gyðinga í Ísrael, sem eru að bíða eftir komu konungsins messías, sem muni greiða leiðina að því sem Yeshua kallaði “marga falsspámenn” (Matt.24:4, 24)
Hins vegar heldur fagnaðarerindið áfram að breiðast út um allan heim, meðal annars í Kína, Indlandi og Afríku, það er hugsanlegt að kristniboðsskipunin muni uppfyllast meðal einnar kynslóðar. Þar að auki eru Messíanskar leifar í Ísrael að vaxa hvern dag.

Matteus 24:32, 34 – Nemið líkingu af fíkjutrénu. Þegar greinar þess fara að mýkjast og laufið að springa út, þá vitið þér, að sumar er í nánd … Þessi kynslóð mun ekki líða undir lok, uns allt þetta er komið fram.

Fíkjutréð er ísraelska þjóðin sem hefur nú aftur eignast líf eftir tvö þúsund ára dauða og útlegð. Hvað er það að greinarnar fari að mýkjast? Haustið 2000, þá fundu mörg okkar sem eru að breiða út fagnaðarerindið hér í Ísrael, breytingu í hjörtum fólksins. Hjörtun eru að mýkjast. Þau eru að hlusta. Hvað þýðir það að laufið springur út? Í dag eru í Ísrael yfir 100 messíanskir söfnuðir.  Þó svo að þeir séu smáir þá eru þeir svo sannarlega að blómstra. Samkvæmt þessari túlkun, þá ætti Yeshua að koma aftur meðal núverandi kynslóðar.

Markús 1:15 – Tíminn er fullnaður og Guðs ríki í nánd. Gjörið iðrun og trúið fagnaðarerindinu
 
Boðskapur biblíunnar á við hverja kynslóð, en hefur samt ákveðnar áherslur samkvæmt þeim sögulegu aðstæðum sem eru hverju sinni. Spádómarnir eru alhliða, samt er “kairos” tími þar sem spádómarnir uppfyllast. Jeremía talaði áður en musterið var eyðilagt. Esra talaði áður en musterið var endurreist. Jóhannes skírari talaði fyrir fyrri komu Yeshua. Við erum hér til að prédika seinni komu Yeshua.

Tíminn er fyrir höndum – á annan hátt en nokkru sinni fyrr síðustu 2000 ár. Aðstæður fyrir konungsríkinu og seinni komu Yeshua eru að byrja að uppfyllast fyrir augum okkar.

Ég skrifa þetta þegar vopnahlé ríkir í stríðinu á Gasa. Sem trúaðir Gyðingar í Ísrael, sjáum við einkennilega fylkingu illra anda. Frjálsir fjölmiðlar eru með rangan fréttaflutning. Múslimar hata okkur af því við erum Gyðingar. Orthodox Gyðingar ofsækja okkur vegna þess að við trúum að Yeshua. Matteus 24:22 - Ef dagar þessir hefðu ekki verið styttir, kæmist enginn maður af. En vegna hinna útvöldu munu þeir dagar styttir verða. Á meðan við þjáumst í samúð vegna saklausra fórnarlamba beggja vegna víglínunnar í núverandi stríði, þá er líklegt að átökin muni harðna um allan heim. Það gætu komið stríð þar sem milljónir eru drepnir.

Sálmur 96:13 – fyrir Drottni, því að hann kemur, hann kemur til þess að dæma jörðina. Hann mun dæma heiminn með réttlæti og þjóðirnar eftir trúfesti sinni.

Þetta er samantekt boðskaparins um endurkomuna. Yeshua er að koma. Hann er að koma sem dómari. Hans dómur verður réttlátur og sanngjarn.

Yeshua endaði kennsluna á Olíufjallinu með þessari aðvörun: verið tilbúin. Matteus 24:44 – Verið þér og viðbúnir, því að Mannssonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér ætlið eigi. Hann mun koma. Það er enginn spurning. Hins vegar er spurningin einföld: verðum við tilbúin?


Tilbaka í greinasafn 2009


Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.