Bankað á þakið
©4. janúar Asher Intrater
Samkvæmt ísraelskum fjölmiðlum og í yfirlýsingum stjórnmálamanna í Ísrael, þá er núverandi stríð ekki stríð gegn Gaza, ekki stríð gegn Palestínumönnum, heldur stríð gegn Hamas. Hamas er hryðjuverkasamtök með það yfirlýsta markmið að eyða algjörlega Ísrael. Samtökin hafa lýst því yfir að vera í framlínu alþjóðlegs Jihad, stutt af róttækum múslimum (þ.m.t. Íran) um allan heim.
Í þessari viku var einn af "hernaðar" leiðtögum Hamas, Nizar Rian, drepin í loftárás Ísraels, hann var uppi á húsinu sínu ásamt 14 öðrum (m.a. 4 eiginkonum).
Þessi árás kom í kjölfarið á nákvæmri vitneskju. Þegar staðsetning á Rian fannst, þá fór Ísraelsher og ráðgjafar ríkisstjórnarinnar í gegnum nákvæmt ferli til að gagna úr skugga um löglegt réttmæti árásarinnar samkvæmt Genfarsáttmálanum.
Fimmtán (15) mínútum fyrir árásina, hringdi Ísraelsher í fólk og bað það að yfirgefa húsið. Þegar þeir fengu þessi símtöl, þá söfnuðu þeir fólki saman á þökum húsanna sem einskonar mannlegum skjöld.
Flugmaðurinn í herþyrlu Ísraels sá þetta, og eins og hryðjuverkamennirnir gerðu ráð fyrir, vildi flugmaðurinn ekki skaða þau.
Flugmaðurinn skaut þá flugskeyti rétt við húsið til að vara fólkið við. En það yfirgaf ekki húsið. Þá skutu þeir að fólkinu án þess að særa það, en til að fá fólkið til að flýja. Það var ekki fyrr en fólkið yfirgaf þakið sem flugmaðurinn skaut eldflauginni sem eyðilagði húsið.
Þegar eldflaugin lenti á húsinu, urðu nokkrar sprengingar í röð, sem benti á það sem Ísraelsher hafði gert ráð fyrir, að í húsinu væri vopnageymsla.
Þessi stefna Ísraelshers, að láta óbreytta borgara vita af komandi árás, er kallað "Bankað á þakið", eins og að banka á dyr áður en þú gengur inní hús.
Opinberunarbókin 16:10-11 lýsir skál fullri af reiði Guðs sem úthellt er yfir "hásæti dýrsins". Heift Guðs er ekki beint fyrst að fólki, heldur að djöfullegum öflum. Hann varar fólk við, og ef fólk fjarlægir sig ekki djöfullegum öflum, þá mun heift Guðs snerta það. Í ellefta versi segir að fólkið gerði ekki iðrun heldur lastmælti Guði fyrir kvalirnar.
Þessi regla á við allt fólk, hvort sem það eru Hvítir eða Svartir, Gyðingar eða Arabar, Austurlandabúar eða Vesturlandabúar. Mætti Guð hjálpa okkur að iðrast synda okkar og fjarlægja okkur frá verki óvinarins, svo við verðum ekki þátttakendur í refsingunni vegna djöfla!
Tilbaka í greinasafn 2009
Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |