Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Stríð á Gaza
©28. december 2008
höfundur Eddie Santoro
forstöðumaður/öldungur
Söfnuður Ahavat Yeshua

Enn einu sinni er þjóðin okkar komin í stríð. Tvöhundruð eldflaugum hefur verið skotið frá Gaza
yfir Suður-Ísrael á sl. tveim vikum og yfir tvöþúsund eldflaugum sl. þrjú ár og loksins hefur Ísrael gengið fram í rétti sínum til að vernda óbreytta borgara.
Baksvið núverandi bardaga
Fyrir þremur árum síðan átti sér stað dramatískur atburður, þegar Ísrael yfirgaf Gaza eftir 40 ár.

Ísrael flutti til þúsundir íbúa sinna og eyðilagði mörg falleg hverfi og þorp í þeim gagngera og tilfinningaþrungna tilgangi að stuðla að friði. Ísrael, ásamt heimsbyggðinni gerði ráð fyrir að þetta yrði til þess að íbúar Gaza myndu hætta hernaðarátökum, þegar þeir væru lausir við það sem þeir töldu vera grimmt hernám Ísraels. Stórum fjárupphæðum var safnað af alþjóðasamfélaginu til að hjálpa þeim við að byggja upp þjóðfélag. Allir vonuðu að þetta djarfa framtak Ísraels myndi loksins gefa frið milli þessara stríðandi fylkinga.
En friður og þjóðaruppbygging er ekki það sem átti sér stað. Hamas nýttu sér þetta nýfengna frelsi til að smygla hergögnum til að ná fram svörnum ásetningi sínum – algjörri eyðingu Ísraels. Staðirnir sem Ísraelsmenn yfirgáfu og áttu að verða að ný hverfi fyrir Palestínubúa, urða að skotpöllum fyrir eldflaugaárásir yfir Ísrael.

Í júní 2007, í blóðugri yfirtöku, drápu Hamasliðar hundruð samlandasinna þegar þeir hröktu liðsmenn Fatah frá Gaza. Þannig náðu þeir róttækum hatursfullum yfirráðum yfir 1,5 milljón íbúa á svæðinu.
Frá þessum tíma hefur Ísrael í þolinmæði lifað í þjáningu og verið í fangelsi þessa hryðjuverkahóps og stöðugra eldflaugaárása.

Jafnvel áður en opinbert vopnahlé milli Ísrael og Hamas endaði 19. desember sl. hafa árásir á Ísrael stóraukist.

Á síðustu tveim vikum hafa yfir tvöhundruð eldflaugum, sprengjuvörpum og þróaðri eldflaugum verið skotið yfir suðurhluta Ísraels; sært, drepið og eyðilagt daglegt líf á svæðinu. Í síðustu viku hélt Olmert forsætisráðherra tilfinningaþrungna ræðu þar sem hann biðlaði til Hamas að stöðva eldflaugaárásirnar. Hann tók það skýrt fram að Ísrael væri miklu sterkara á hernaðarsviðinu og ef þessum árásum linnti ekki , þá myndi Ísrael, eins og allar aðrar þjóðir jarðarinnar, verða að nota hernaðarstyrk sinn til að stöðva þær

Upphaf stríðsins

Í gærmorgun, klukkan 11:30, svaraði Ísrael í sömu mynt. Í nokkra mánuði hafði herinn undirbúið þessa árás, safnað saman vitnesku um skotmörk hjá Hamas, uppbyggingu

hryðjuverkasamtakanna, heimili leiðtoganna, staðsetningu vopnabúra o.s.frv. Á aðeins 3 mínútum voru yfir 100 skotmörk eyðilögð á Gaza. Á þessum morgni voru yfir 230 Palestínumenn drepnir, þúsundir særðir og mikil eyðileggin á innviðum Hamas. Hernaðarupplýsingar segja að 97% skotmarka og látinna hafi verið byggingar Hamas og liðsmenn.
Þetta er í fyrsta sinn, frá því sex daga stríðið átti sér stað árið 1967 að Ísrael hefur staðið fyrir svona mikilli árás á Gaza. Ríkisstjórnin hefur tilkynnt að þetta verði áframhaldandi aðgerð sem gæti einnig falið í sér árás landgönguliða.
Bænavernd
Hyljið þjóðina með fyrirbænum. Þetta eru berskjaldaðir tímar og viðbrögð Arabaþjóðanna eru ófyrirsjáanleg.

  • Biðjið vernd yfir Ísrael. Á síðasta sólarhring hefur 60 eldflaugum verið skotið yfir landið. Í gær hitti ein flaugin íbúðarblokk, drap einn og særði fjóra.
  • Biðjið gegn þátttöku Hezbollah. Það er mikil hætta á því að Hezbollah, sem nú hefur mikil yfirráð í Líbanon, notfæri sér aðstæðurnar sem afsökun fyrir árás á Norður-Ísrael, og noti þær 45.000 eldflaugar sem samtökin hafa safnað saman.
  • Biðjið fyrir réttum skilningi þjóða heims. Nú þegar heyrast þessar venjulegu ásakanir um fjöldamorð, ójafna valdbeiting og refsingar. Biðjið fyrir opinberun á þessum heimskulegu ásökunum.
  • Biðjið fyrir visku og herkænsku yfir stjórnvöld og hernaðaryfirvöld sem bera ábyrgð á árásinni.
  • Biðjið um vernd fyrir flugmenn og hermenn sem berjast við að vernda þjóðina.
  • Biðjið fyrir Palestínuþjóðinni. Við finnum til með þeim þegar við sjáum sársauka og þjáningu þeirra, við vitum að Guð hefur svo miklu meira og betra fyrir fólkið. Biðjið að ósannindin sem fólkið hefur verið matað á af leiðtogum, að eina von þeirra fyrir framtíðina sé stríð við Ísrael, verði opinber, að þessi rakalausa ímyndun afhjúpist. Biðjið fyrir trúuðum sem eru að færa fagnaðarerindið um Yeshua til Palestínuþjóðarinnar, að sæðinu verði sáð í frjósaman akur í hjarta fólksins. Biðjið einnig um varðveislu yfir trúaða á Gaza og á Vesturbakkanum.

    Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.