Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Nýr Borgarstjóri í Jerúsalem
©16. november 2008 Asher Intrater

Við fögnum kosningu Nir Barkat í embætti borgarstjóra Jerúsalem og trúum því að þetta sé mikilvægur andlegur sigur. Barkat hefur verið farsæll í viðskiptum, Major í ísraelska hernum og leiðtogi hreyfingar sem starfar að endurnýjun Jerúsalem. (Tveir synir okkar störfuðu við framboðið).
Kosningarnar voru framanaf mjög jafnar. Stór hópur ultra Orthodox eða strangtrúaðra Gyðinga hópuðust um að kjósa Meir Porush, sem einnig var í framboði. Einn af sonum mínum hringdi og við báðum saman í símanum í klukkustund eða þar til kjörstöðum var lokað.

Næsta dag hringdi hann og sagði að kraftaverk hefði gerst. Hópur sem kallar sig "Gur Chassidim" snéri sér frá stuðningi við Porush og studdi við Barkat. Blaðamenn voru furðulostnir. Sonur minn sagði: "Pabbi, það er eins og bæn okkar hafi klofið konungsríki myrkursins eins og talað er um í Lúkas 11."

Biðjum að nýr borgarstjóri færi endurnýjun til Jerúsalem og alla íbúa þar - Gyðinga, trúaða Gyðinga, araba og kristinna - sem búa í borginni.

Andlegar rætur núverandi efnahagskreppu
Mörg fyrirtæki skiluðu miklum gróða með afleiðum og samhangandi lánum. Þessi fyrirtæki voru ekki að eignast fjármuni með raunverulegri vinnu, ekki að bjóða neina raunverulega bankaþjónustu, heldur einungis að ráðskast með fjármuni á pappírum. Þessi óheiðarleiki gaf falskan gróða sem á endanum hrundi.
Sumir kristnir hafa gert þau mistök að halda að kapítalismi, sé nóg til að færa fram blessun Guðs. Það er ekki satt. Kapítalismi af hálfu Guðs, myndi innihalda heilindi, lög gegn spillingu og hvatningu til örlætis.
Auk þess hafa sumir forstöðumenn og trúboðar gert þau mistök að sjá tíund og fórnir sem möguleika á þægilegum lífsstíl fyrir þá sjálfa. Það er ekki rétt. Markmið biblíulegra gjafa er 1) koma á fót safnaðarstarfi, 2) heimstrúboð, 3) hjálpa fátækum og þeim sem eru undirokaðir.
Hins vegar eru margir réttlátir kaupsýslumenn og konur í heiminum. Ef þetta fólk tileinkar viðskipti sín guðlegum reglum, berjast gegn græðgi og spillingu, og gefa samkvæmt forgangsröð konungsríkisins, þá munu þau á þessum tímum erfiðleika í efnahag njóta mikilla blessana. Á sama hátt og Ísak sáði á þurrkatímum og uppskar hundraðfallt og Jósep dafnaði á tímum hungursneyðar í Egyptalandi, þá er núna tími fyrir réttláta kaupsýslumenn og konur að rísa upp og taka stöðu sína.
Á þessum tíma, er Guð einnig að staðsetja sitt fólk. Það er yfirfærsla á auðmunum, ný uppröðun. Orðskviðirnir 13:22 - eigur syndarans eru geymdar hinum réttláta.
Tvö lykilatriði varðandi biblíuleg fjármál eru 1) heilindi, og 2) gjafmildi. Eftir tveggja ára baráttu við innanríkisráðuneytið, höfum við loksins náð fram samþykki á lögformlegum viðmiðum, sem við trúum að muni reisa upp staðal sem stuðlar að heilindum í fjármálum og gjafmildi innan líkama Messíasar hér í Ísrael.
Þrátt fyrir stöðu efnahags í heiminum, þá trúum við því að þetta verði besta ár sem við höfum upplifað. Við ætlum að auka gjafir okkar og starf okkar við heimstrúboð. Jesaja 60:10 – Hlið þín munu ávallt opin standa, þeim er hvorki lokað dag né nótt, til þess að menn geti fært þér fjárafla þjóðanna og konunga þeirra sem bandingja.
Það er þrá okkar að vera uppspretta fjárhagsblessana fyrir marga.

Obama og tækifæri fyrir alheimstrúboð
Við erum dyggir stuðningsmenn þess að velja gildi fjölskyldunnar og lífsins. Að velja dómara sem lögleiðir fóstureyðingu við fulla meðgöngu og hjónaband samkynhneigðra væri sorglegt.
Sem ríkisborgari í Ísrael, þá hef ég miklar áhyggjur af því að Vesturlönd séu að vanmeta gríðarlega, illskuna og hættuna sem stafar af Jihad Íslam. Unga fólkið okkar er í fremstu víglínu í ísraelska hernum að berjast við hryðjuverk.
Mér fannst sorglegt að kjósendur skyldu ekki meta þjóðrækinn hermannabakgrunn McCain. Árás fjölmiðla á Palin var grimm, sérstaklega vegna hreinskilni hennar varðandi trú sína á Jesú.
Það er hægt að horfa á kosningarnar í Bandaríkjunum sem dóm Guðs yfir Ameríku vegna kynferðislegs siðleysis og fjármálaspillingar; og gagnvart kirkjunni fyrir að biðja ekki nægjanlega fyrir leiðtogum og skort kirkjunnar á umhyggju tilhanda fátækum og þeim sem eru undirokaðir.
En þrátt fyrir dóm Guðs, þá er alltaf undraverð náð. Samhliða dómnum er líka tækifæri á siðferðislegum viðsnúning. Við skulum ganga í heilögum ótta Drottins og þakka Honum fyrir yfirgnæfandi náð.
Við þurfum að biðja í öruggri trú að Drottinn stýri Obama og hans starfsfólki. (Orðskviðirnir 21:1, 1.Tímoteusarbréf 2:1-4, Jeremía 29:7). Biðjum fyrir öllum sem eru í leiðtogastöðum á löggjafarþinginu, í dómskerfinu, hernum, viðskiptum, menntakerfinu og fjölmiðlunum. Höfum hugfast að Guð hefur í hendi sér andlegt vald yfir ríkisstjórnum heimsins. (Daníelsbók 4:17, 25, 32; 5:21).
Það eru gífurleg tækifæri framundan. Kynþáttur Obama opnar dyr fyrir sáttargjörð milli kynþáttanna. Það að hann er blökkumaður og segist vera kristinn býður uppá tækifæri fyrir trúboð meðal blökkumanna í Ameríku, Evrópu og Afríku. Það að hann "velur" að vera kristinn þrátt fyrir að faðir hans sé með múslimabakgrunn opnar dyr fyrir trúboð meðal múslima um allan heim.
Það er ekki hlutverk ríkisstjórna að prédika fagnaðarerindið; það er okkar starf. Obama er ekki aðeins forseti Bandaríkjanna; hann er nú orðinn leiðtogi svo að segja alls heimsins. Næstu 4 - 8 ár gætu orðið tími mestu vakningar og framrásar konungsríkis Guðsí sögunni... ef við bregðumst við af hugrekki og í kærleika.
Á þessum endatímum, mun myrkrið verða myrkara og ljósið skærara (Jesaja 60:1-3). Ofsóknir munu aukast, en einnig yfirlýsingar fagnaðarerindisins. Við skulum vara heiminn við dóm Guðs og á sama tíma þjálfa djarfa trú varðandi alheimsvakningu.


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.