|
Tvær Jerúsalem
©13. júlí 2008, Asher Intrater
Biblían talar um tvær Jerúsalem; jarðneska og himneska. Meirihluti ritningarversa fjallar um hina jarðnesku Jerúsalem en það eru tilvísanir í hina himnesku Jerúsalem í nýja sáttmálanum.
Galatabréfið 4:26 – „Jerúsalem, sem er í hæðum, er frjáls og hún er móðir vor“
Hebreabréfið 12:22 - „Þið eruð komin til Síonfjalls og borgar Guðs lifanda, hinnar himnesku Jerúsalem,…“
Flestar uppgötvanir og opinberanir varðandi hina jarðnesku Jerúsalem hafa komið frá Gyðingum; á meðan skilningur og opinberanir varðandi hina himnesku Jerúsalem hafa komið frá kristnum.
Hinsvegar hefur alltaf mátt sjá í skrifum Rabbía, fallað um “Jerúsalem fyrir ofan” og “Jerúsalem fyrir neðan”. Og á meðal kynslóða frá því Jerúsalem komst aftur undir yfirráð Gyðinga árið 1967, hefur skilningur kristninnar á áætlun Guðs fyrir hina jarðnesku Jerúsalem stóraukist. Það er áhugavert, að í Kóraninum er hvergi fjallað um Jerúsalem og þegar Múslimar í Austur-Jerúsalem biðja og snúa sér til Mekka, að þá snúa þeir baki í Musterishæðina.
Það er ekki einungis himnesk Jerúsalem, heldur einnig himneskt musteri í þeirri borg (Opinb. 15:5-8 og 2. Mós. 25:40)
Frá öllum hliðum konungsríkis Hans, þá er það Guðs vilji að það sé samhljómur á milli himnesks raunveruleika og jarðnesks raunveruleika. Það sem við bindum á jörðu, er bundið á himnum (Matt. 16:19, 18:18) Við eigum að biðja vilja Guðs á jörðu sem á himni (Matt. 6:10)
Konungsríki Guðs verður augljóst þegar það er samhljómur á milli hins himneska og jarðneska.
Vegna aðskilnaðar á milli Ísrael og kirkjunnar síðastliðin 2000 ár, þá hefur ekki verið samhljómur á milli jarðneskrar og himneskrar Jerúsalem. Hins vegar er núverandi kynslóð blessuð að sjá sáttargjörð þarna á milli. Vilji Guðs með hina jarðnesku og himnesku Jerúsalem mun sameinast þegar það verður sáttargjörð á milli Ísrael og kirkjunnar.
Í dag, þegar það eru Messíanskir Gyðingar sem trúa á Yeshua (Jesús) búsettir í Ísrael, þá eru englar á uppleið og niðurleið frá himni til jarðar og öfugt, til að koma á sáttargjörðinni. Yeshua ríkir í hinni himnesku Jerúselm sem sonur Guðs; Hann mun ríkja í hinni jarðnesku Jerúselam sem sonur Davíðs konungs. Þökk sé Guði að Yeshua er hvorutveggja ( Róm 1:4)
Jerúsalem er ekki einungis mikilvæg út frá sögulegu sjónarmiði (binding Ísaks, höfuðborg Davíðs, musteri Salómons, dauði og upprisa Yeshua), hún hefur líka mikla þýðingu í spádómum framtíðarinnar. (miðpunktur kennslu og vakningar – Jesaja 2; endatíma orrustan – Sakaría 14; endurkoma Yeshua – Postulasagan 1:11; höfuðborg þúsundára ríkisins – Esekíel 40-48, Míka 4)
Við lok þúsundára ríkisins mun hin himneska Jerúsalem og hin jarðneska sameinast í nýjum himni og nýrri jörð. Þá munu þær tvær verða sameinaðar. Í Opinberunarbókinni er þrisvar talað um himneska Jerúsalem sem kemur niður.
Opinberunarbókin 3:12 – “hinnar nýju Jerúsalem, er kemur af himni ofan frá Guði mínum…”
Opinberunarbókin 21:2 - Og ég sá borgina helgu, nýja Jerúsalem, stíga niður af himni frá Guði, búna sem brúði er skartar fyrir manni sínum.”
Opinberunarbókin 21:10 – “borgina helgu, Jerúsalem, sem steig niður af himni frá Guði”
Hvaðan kemur Jerúsalem? – frá himnum. Hvert fer Jerúsalem? – til jarðar. Þegar himnesk og jarðnesk Jerúsalem sameinast, þá verður konungsríki Guðs eitt. (Sakaría 14:9) og allir hlutir á himni og jörðu munu safnast saman frammi fyrir einum, Yeshua (Efesus 1:10). Hann er bæði höfuð kirkjunnar og konungur Ísraels. Í honum verða himnesk og jarðnesk Jerúsalem, eitt.
Það eru yfir 1000 tilvitnanir í Jerúsalem í biblíunni. Hún hefur miklu hlutverki að gegna í konungsríki Guðs. Ekki að undra þó borgin sé miðpunktur deilna og jafnvel hernaðarátaka allra þjóða heims (Sakaría 12:3, 12:9, 14:2, 14:12) Sameining himneskrar Jerúsalem og jarðneskrar Jerúsalem táknar endurreisn aldingarðsins Eden eins og hann var fyrir syndafallið.
Þakka ykkur fyrir að taka þátt með okkur og, biðja fyrir friði í Jerúsalem (Sálmur 122:6), þegar við færum fagnaðarerindið svo allur Ísrael megi frelsast (Post. 1:8, Róm. 11:26); þegar við hrópum á endurkomu Yeshua “Blessaður er sá sem kemur” (Matt. 23:39) Samstarf okkar er liður í því að sameina himneska og jarðneska Jerúsalem.
Tilbaka í greinasafn 2008
Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |