Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Þrír leyndardómar Efesusbréfsins
© 5. ágúst 2008 Asher Intrater

Efesusbréfið fjallar um þrjá leyndardóma sem allir byggjast á fyrirmyndinni í sambandi Adam og Evu, þar sem þau tvö verða eitt. Þessa þrjá leyndardóma finnum við í Efesusbréfinu 1, 3 og 5 kafla (Hér verður umfjöllunin í öfugri röð.)

Efesusbréf 5:31-32:
Þess vegna skal maður yfirgefa föður og móður og búa við eiginkonu sína, og munu þau tvö verða einn maður. Þetta er mikill leyndardómur. Ég hef í huga Krist og kirkjuna.

  1. Fyrsti leyndardómurinn er innilegt brúðarsamband við Messías.

Í andanum verðum við eitt með Yeshua (Jesú) eins og eiginmaður og eiginkona verða einn maður. Þessi möguleiki manns, að verða eitt með Guði, sameinast Honum í gegnum Messías er meiriháttar.
Nýi sáttmálinn er hjónabandssáttmáli milli okkar og Guðs.

Guð skapaði manninn í sinni mynd og sagði að það væri ekki gott fyrir hann að vera einsamall. Á vissan hátt var Guð að tala um sjálfan sig þarna, Hann skapaði okkur til samfélags við sig. Á sama hátt og karl og kona hafa náið samfélag í hjónabandi, getum við, fyrir sáttmála trúarinnar í gegnum Yeshua, haft náið samfélag við Guð.

Samfélag trúaðra, ecclesia, kehila, kirkjan, þjóðfélagið Ísrael – var skapað til að vera brúður Messíasar. Við erum Hans og Hann er okkar. Það innilega brúðarsamband sem er lýst í Ljóðaljóðunum, er uppfyllt andlega í okkur, í gegnum eininguna með Guði í Yeshua.

  1. Annar leyndardómurinn er samfélag milli Gyðinga og heiðingja í gegnum fagnaðarerindið.

Efesusbréf 3:3,6
Að birta mér með opinberun leyndardóminn... Heiðingjarnir eru í Kristi Jesú fyrir fagnaðarerindið orðnir erfingjar með oss, einn líkami með oss, og eiga hlut í sama fyrirheiti og vér.

Allt frá þeim tíma sem Abraham var uppi og til ársins 70 e.kr. þegar musterið var eyðilagt, notaði Guð 2000 ár til að leggja sáttmálsgrunninn að konungsríki sínu í Ísraelsku þjóðina. Frá tímum Yeshua og til dagsins í dag, þau 2000 ár hefur Guð notað til að breiða út fagnaðarerindið um konungsríki sitt til allra þjóða.

Frá þeim tíma þegar Jerúsalem komst aftur í hendur Gyðinga árið 1967 (Lúk. 21:24) hefur Guð verið að færa samband Kirkjunnar og Ísrael á nýjan stað og gefa nýja samvinnu innan konungsríkis Hans.

Krossinn sættir ekki eingöngu okkur við Guð, heldur sættir okkur líka við hvort annað; hvíta og svarta, karla og konur, gyðinga og heiðingja. Og það sem er hvað dýrmætast er einingin og kærleikurinn milli messíanskra Gyðinga og kristinna Palestínu-Araba.

Áætlun Guðs með að búa til Ísrael, síðan kirkjuna og síðan að sameina þetta tvennt, á samsvörun í því þegar Guð skapaði fyrst Adam, svo Evu og sameinaði þau síðan. Og leyndardómur samfélagsins milli Gyðinga og kirkjunnar á sér hliðstæðu í leyndardómnum með að eiga náið brúðarsamfélag við Messías.

  1. Þriðji leyndardómurinn er endurreisn himins og jarðar í Yeshua.

Efesusbréf 1:9-10
Og hann kunngjörði oss leyndardóm vilja síns, þá ákvörðun,sem hann hafði með sjálfum sér ákveðið að framkvæma, er fylling tímans kæmi: Hann ætlaði að safna öllu því, sem er á himnum, og því, sem er á jörðu, undir eitt höfuð í Kristi.

Takið eftir, að aftur er leyndardómurinn sá, að sameina tvo ólíka hluti í eitt. Guð skapaði bæði himinn og jörð. Og það var „gott“. Þegar maðurinn var skapaður þá var það „harla gott“. Það var síðan synd mannsins og uppreisn Satans sem eyðilagði sköpunina. Í gegnum Yeshua, eru áhrif syndarinnar og Satans tekin burt og himin og jörð endurreist.

Í Yeshua, þá verða himinn og jörð miklu meira en „harla gott“. Það verður framúrskarandi, jafnvel fullkomið. Endanlega áætlun Guðs með konungsríkið er ekki að við færumst upp í andlegt algleymi, leyst úr viðjum líkamans,  heldur er áætlun Guðs sú að við rísum upp frá dauðum í endurreisnar líkömum í endurreista nýja sköpun. (Róm 8:18-23)

(Við höfum nasasjón af endurreisnar líkömunum í útliti Yeshua eftir upprisuna og eins þegar við lesum um dýrðarljóma Hans á ummyndunarfjallinu. Nýja sköpunin verður hliðstæð endurreisn og endurnýjun hins náttúrlega eins og upprisan er líkamanum)

Það mun verða samhljómur milli himins og jarðar.  („til komi þitt ríki, verði þinn vilji, svo á jörðu sem á himni“ - Matt. 6:10) Síðustu tveir kaflarnir í Opinberunarbókinni lýsa dýrlegri endurreisn á því sem var í fyrstu tveimur köflunum í 1. Mósebók.

Alla þessa þrjá leyndardóma finnum við í Yeshua. Við eigum brúðarsamfélag við Guð, vegna þess að Jesús er bæði Guð og maður. Við eigum einingu milli Gyðinga og heiðingja, vegna þess að Jesús er bæði höfuð kirkjunnar og konungur Ísraels. Við eigum einingu milli himins og jarðar því Jesús er bæði sonur Guðs og sonur Adams.

Athugið: Viðhorf Hebrea um allan heim er að skoða þessa leyndardóma frá 1, 3, 5 kafla: fyrst frá skilningi á himni og jörðu, síðan útfrá skilningi Gyðinga og heiðingja, síðan frá einingu okkar við Guð. Grískt viðhorf  er fyrst guðdómleg eining, síðan eining milli Gyðinga og heiðingja og að lokum endurreisn himins og jarðar. Í báðum tilfellum, þá er sameining Gyðinga og heiðingja brúin að þriðja leyndardómnum. Biblían er rituð bæði á hebresku og grísku og eru þess vegna bæði þessi viðhorf  jöfn frammi fyrir Guði.


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.