
| Hryðjuverkaárás í Jerúsalem og „bjargað úr neyð Jakobs“ ©3. júlí, 2008 Asher Intrater Yngsti sonur okkar Amiel var viðstaddur hryðjuverkaárásina í gær (miðvikudaginn 2. júlí) í Jerúsalem. Hér er það sem hann sá: Ég var að ganga frá miðbænum að strætisvagnamiðstöðinni,stóð á horninu á Malchei Israel og Jaffa street. Stór skurðgrafa kom akandi niður Malchei Israel, keyrði yfir bíla og klessti þá algjörlega. Skurðgrafan hélt áfram æðandi, reyndi að keyra yfir bláan bíl, sem spólaði í örvæntingu. Ég stóð til hægri, strætisvagn til vinstri. Jarðýtan beygði inná Jaffa street og beint á strætisvagninn. Ég var núna úr allri hættu. Strætisvagninn hélt áfram að keyra, beigði til hægri og rakst á stoppistöð sem var full af fólki sem hljóp í burt til að bjarga lífi sínu.Hann bakkaði og hélt áfram að keyra. Ungur Orthodox maður hljóp framhjá mér og að stoppistöðinni, hrópandi: „Vopn, er einhver með vopn?“ Jarðýtan hélt áfram og í þetta sinn keyrði hún á strætisvagn á hægri hönd, bakkaði, lyfti síðan vagninum upp þannig að hann féll á hliðina. Vagninn var fullur af fólki. Ég reyndi að hringja í 100 (lögregluna) en línan var upptekin. En vegna þess að ég er sjálfboðaliði í björgunarsveitunum gat ég hringt í 101. 101: „Halló, þetta er Read Magen David.“ Vopnaðir borgarar, hermenn og lögreglan voru á hlaupum að hryðjuverkamanninum, hlaðandi vopn sín. Fólk var að byrja að koma út úr vagninum sem lá á hliðinni. Grátandi kona með barn öll útötuð í blóði. Verið var að sinna konu á götunni en fótur hennar var allur blóðugur og tærnar alveg kramdar. Maður kom út þakinn blóði, öskrandi af sársauka „öxlin á mér“ og bölvaði hryðjuverkamanninum. Ég hringdi í mömmu til að láta vita að allt væri í lagi með mig. Þegar ég var að tala við hana heyrði ég byssuskot. „Heyrirðu byssuskotin mamma? Þeir eru að skjóta hryðjuverkamanninn.“ Það kom síðar í ljós að ungi orthodox maðurinn sem var að spyrja um vopn, var sérsveitarmaður í hernum en var í leyfi. Honum tókst að fá lánaða byssu, klifraði upp á jarðýtuna á meðan hryðjuverkamaðurinn hrópaði „Allah Akhbar.“ Hann skaut hryðjuverkamanninn þrisvar, drap hann á staðnum og stöðvaði þannig æðiskastið og blóðbaðið. Ísrael syrgir lát 3 einstaklinga og tylft slasaðra. Eftir öll þessi ár þá er „Rakel“ en að „syrgja börn sín“ (Jeremía 31:15) vegna heimskulegs og djöfullegs ofbeldis. Yeshua (Jesús) grætur einnig yfir Jerúsalem (Lúkas 19:41) Alveg eins og börnum var slátrað við fæðingu Yeshua (Mattheus 2:18) og enginn skildi hvers vegna; þannig líður ísraelsku þjóðinni í dag, fólk skilur ekki hvers vegna svona stór hluti heimsins hatar þau. Hins vegar, í miðjum þrengingunum, þá vex Messíanski söfnuðurinn í Ísrael. Fólk frelsast á hverjum degi. Við sjáum kraftaverk gerast. Nýi sáttmálinn talar um tíma þrenginganna á endatímunum (Mattheus 24 og Markús 13) Það er líka skrifað að „Allur Ísrael muni frelsaður verða“ – Rómverjabréfið 11:26. Áætlunin um þrengingu endatímana og að Ísrael frelsist kemur frá sömu uppsprettu. Jeremía 30:7 – „Þetta er þrengingatíð fyrir Jakob en honum verður bjargað.” Þegar Páll (Sál) talaði um frelsun Ísraels og Yeshua talaði um þrengingar endatímana, þá höfðu þeir báðir þessa ritningarstaði til hliðsjónar (ásamt fleirum) Þrengingarnar og frelsunin er tengt hvort öðru. Af þessu lærum við:
Og á meðan Ísrael er í því ferli að frelsast, þá er djöfullinn fullur af skelfingu og reiði því hann veit að tími hans er stuttur (Opinberunarbókin 12:12) Frelsi Ísrael er síðasti liðurinn konungsríki Guðs fyrir endurkomuna og endurreisn dauðra. Fyrir 2000 árum var nærri óhugsandi að Ísrael gæti orðið þjóð, og hvað þá heldur að það yrði vakning í landinu. En í dag, þrátt fyrir Íslamskt Jihad og gyðingahatur um allan heim, þá hefur Ísrael verið endurstofnsett og það eru um 10.000 Messíanskir gyðingar búsettir í Landinu. Allir þessir trúuðu einstaklingar eru samhentir í bæn, lofgjörð og spádómum um að „allur Ísrael mun frelsaður verða“ og eru reiðubúnir að horfast í augu við þrengingarnar því samhliða. Það er mikilvægt á þessum tímum að við þekkjum sáttmálann um guðdómlega vernd gegn illskunni. Sálmur 91:10-11 - Engin ógæfa hendir þig og engin plága nálgast tjald þitt því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum. Á hverjum föstudegi, áður en við borðum kvöldmáltíðina, lýsum við þessu yfir. Sameinist með okkur í trú og samfélagi. Tilbaka í greinasafn 2008 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |