Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Biðjum fyrir útnefningu réttlátra dómara
©23. september 2008 Asher Intrater

Einn aðalkjarninn í Biblíunni er réttlæti. Réttlæti þýðir einfaldlega: 1) refsing á hinum vondu, 2) verðlaun fyrir hina réttlátu, og 3) sýkn saklausra. Og að lokum er það Guð sem ber ábyrgð á réttlætinu. Hann hefur samt sem áður sett upp kerfi þar sem Hann felur mönnunum að framfylgja dómum.

Fremstur allra dómara er Yeshua (Jesús) sjálfur.

Postulasagan 17:30-31
Guð, boðar nú mönnunum, að þeir skuli allir hvarvetna taka sinnaskiptum, því að hann hefur sett dag, er hann mun láta mann, sem hann hefur fyrirhugað, dæma heimsbyggðina með réttvísi. Þetta hefur hann sannað öllum mönnum með því að reisa hann frá dauðum.


Jóhannes 5:22
Enda dæmir faðirinn engan, heldur hefur hann falið syninum allan dóm

2.Korintubréf 6:2
Því að öllum oss ber að birtast fyrir dómstóli Krists, til þess að sérhver fái það endurgoldið, sem hann hefur aðhafst í líkamanum, hvort sem það er gott eða illt.

Dómgæsla verðandi heims er ekki eingöngu í höndum Yeshua heldur öllu réttarfarslegu teymi Hans, starfsfólki og lagalegum ráðgjöfum. Og hverjir eru þeir? - Það eru þeir sem eru fylgismenn Hans og hafa verið þjálfaðir af honum til að starfa sem réttlátir dómarar.

1.Korintubréf 6:2
Eða vitið þér ekki, að hinir heilögu eiga að dæma heiminn? Og ef þér eigið að dæma heiminn, eruð þér þá óverðugir að dæma í hinum minnstu málum?

Matteus 19:28
þér, sem fylgið mér, einnig sitja í tólf hásætum og dæma tólf ættkvíslir Ísraels.

Sumir halda því ranglega fram, að fagnaðarerindið afnemi allan dóm. Það er ekki rétt. Friðþægingin er lagaleg sakaruppgjöf. Hvernig getur verið sakaruppgjöf ef það er engin dómari.

Fyrirgefning stendur þeim til boða sem iðrast gjörða sinna og trúa á þann eina sem hefur fyrirgefið þeim. Ef það væri ekki þörf á iðrun, þá væri náðin að réttlæta syndina. Boðskapur fagnaðarerindisins byrjar á "iðrist og trúið"

Sakaruppgjöf væri ekki í boði, ef sá sem gefur upp sökina hefði ekki vald til að dæma. Sá sem hefur vald á sakaruppgjöf hefur líka vald til að refsa. Þegar Yeshua sagði fólki að hann fyrirgæfi þeim, þá tók hann sér stöðu sem dómari yfir þeim. Hann sem gaf upp sakir við fyrstu komu Hans, mun refsa fyrir syndir við seinni komu Hans.

Réttlæti snýst ekki um "einn dómsdag", heldur viðvarandi framkvæmd á réttlæti Guðs. Þeir sem hafa sannað sig sem trúverðuga í þessari veröld, munu taka þátt í að framkvæma réttlætið í komandi veröld. Að dæma og ríkja helst í hendur í stjórn Guðs.

5. Mósebók 16:18-20
Dómendur og tilsjónarmenn skalt þú skipa í öllum borgum þínum,... og þeir skulu dæma lýðinn réttlátum dómi. Þú skalt eigi halla réttinum. Þú skalt eigi gjöra þér mannamun og eigi þiggja mútu,... Réttlætinu einu skalt þú fram fylgja.


Þessi yfirlýsing í Torah er gríðarlega stór! Það sýnir fram á réttlátt dómskerfi OG dómskerfi sem framfylgir því kerfi. Dómarar eru ákvarðaðir af Guði. Þess vegna mun þeir sem framfylgja réttlætinu vera "ráðsmenn" Guðs.

Athugið: Ríkisstjórnir eru þrískiptar: 1. löggjöf - lögmenn, 2. dómskerfi - dómarar, 3. framkvæmdavald - framkvæmdastjórn. Þessar þrjár skiptingar eru grundvallaðar á þremur hliðum Guðs yfirvalds. (Jesaja 33:22 - YHVH, dómari okkar; YHVH, löggjafi okkar; YHVH, konungur okkar) Meðlimir löggjafar-, dóms- og framkvæmdavalds eru allir taldir til ráðsmanna Guðs.

Rómverjabréfið 13: 1,4
Því ekki er neitt yfirvald til nema frá Guði... Því að þau eru þjónn Guðs þér til góðs. En ef þú gjörir það sem illt er, þá skaltu óttast. Yfirvöldin bera ekki sverðið ófyrirsynju, þau eru Guðs þjónn, hegnari til refsingar þeim er aðhefst hið illa.

Okkar verk sem trúboða er að fá fólk til að taka á móti fyrirgefningu Guðs fyrir Yeshua, svo það lendi ekki í reiði Guðs.

Verk okkar sem spámanna er að lýsa yfir réttlæti Guðs, svo fólk iðrist og eignist fyrirgefninguna.

Okkar verk sem fyrirbiðjendur er að biðja fram rétta einstaklinga í stöður dómara og að þeir sem eru nú þegar í þeim stöðum, standi fyrir réttlæti Guðs.

Guð þráir að fólk Hans endurheimti skikkju spámannsins og lýsi yfir réttlæti Hans yfir þessa veröld.

Amos 5:24
Lát heldur réttinn vella fram sem vatn og réttlætið sem sírennandi læk.

Það er mikilvægt að við biðjum fram réttláta dómara og að þeir verði settir í dómarastöður innan ríkisstjórnarinnar!

Jesaja 1:26
Ég skal fá þér aftur slíka dómendur sem í öndverðu og aðra eins ráðgjafa og í upphafi. Upp frá því skalt þú kallast bær réttvísinnar, borgin trúfasta.

Þetta loforð Guðs er í daglegri bæn orthodox Gyðinga

Við höfum skikkju spámannsins alveg eins og Amos, til að lýsa yfir Guðlegu réttlæti og eins og Jesaja, að biðja fram réttláta dómara. Við skulum uppfylla þessa spámannlegu tilskipun og Guð mun þá breyta gangi sögunnar og ríkistjórna.


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.