Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Bæn fyrir Ísrael
©10. september 2008 Asher Intrater

I. Barnamorð

Síðastliðna viku hafa fréttir af tveimur barnamorðum verið yfirgnæfandi í ísraelskum fjölmiðlum. Í öðru tilvikinu var það Roni Ron, sem átti í framhjáhaldi við tengdadóttur sína, hann myrti dóttir hennar (barnabarn sitt) , Rosi sem var aðeins 4 ára, sagt er að hann hafi sett hana í ferðatösku og kastað út í ánna Yarkon.
Í hinu tilfellinu var það móðir, Olga Borisov, sem þjáðist af þunglyndi og bjó við ofbeldi frá eiginmanni sínum. Í örvæntingarkasti, tók hún 4 ára gamlan son sinn, Alon, og drekkti honum í sjónum nálægt Bat Yam.
Þessi glæpir sína okkur uggvænlegt eðli syndarinnar. Iðrumst synda okkar og syndar fólks okkar. Mættu þessir glæpir draga fólk nær Guði, að það skilji þörfina á fyrirgefningu, hreinsun og frelsi.
Grundvallaruppistaða í fornri skurðgoðadýrkun var kynferðislegt siðleysi. (Sama mætti segja um nútíma-skurðgoðadýrkun). „Vandamálið“ við kynferðilsegt siðleysi var að það leiddi af sér ótímabærar þunganir. Einhvernvegin var að takast á við þessi óvelkomnu börn. Þetta leiddi til barnamorða sem voru „andleg“ afleiðing siðleysisins.
5. Mósebók 12:31 - því að þegar þessar þjóðir þjónuðu guðum sínum gerðu þær allt sem Drottni, Guði þínum, er viðurstyggð og hann hatar. Jafnvel syni sína og dætur brenndu þær í eldi fyrir guði sína.
Hliðstæðan við fóstureyðingar er augljós. Enginn „vill“ fara í fóstureyðingu. Það er lostinn sem krefst kynferðislegs siðleysis, sem leiðir af sér óvelkomin börn. Svo er það þetta óþægilega vandamál varðandi það að losa sig við þessi truflandi litlu hluti.
Þessi barnamorð voru framkvæmd af foreldrum. Við þurfum umfangsmikinn viðsnúning á meðal foreldra, að þeir snúi sér með kærleika og trúfesti til barna sinna. Þetta er nákvæmlega það sem var spáð um að andi Elía myndi gera á endatímunum.
Malakí 4:5-6„Sjá ég sendi yður Elía spámann, áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að ég komi ekki og ljósti landið banni.“
Á árlegri ráðstefnu okkar hér í Ísrael, sem heitir „One Thing“ (aðeins eitt), kraup ég á sviðinu, frammi fyrir ungu kynslóðinni, og baðs fyrirgefningar fyrir hönd minnar kynslóðar sem foreldri. Við báðum anda Drottins að koma með endurreisn og lækningu á milli þessara kynslóða sem lið í endatímavakningunni í Landinu.

II.     Sumartrúboð

Biðjið fyrir ávöxt af því sæði sem sáð hefur verið í trúboði í sumar - sérstaklega sáningunni til ungs fólk á sólarstöndum, leitt af Adi S og Liat A. Biðjið líka fyrir ávexti af næstu ráðstefnu sem haldin er í haust og leidd af Zeev N.

III.     Öflugir unglingar

Biðjið fyrir ávexti af lærisveina-prógramminu sem haldið var í sumar fyrir unglinga. Við tókum 12 bestu unglingana og settum í sérstaka dagskrá sem byrjaði klukkan 5:00 að morgni og stóð til miðnættis. Síðastliðinn miðvikudag stóð Yoel Y fyrir kvöldbænastund og föstu fyrir unglinga í Tel Aviv. Guð er vissulega að hreyfa við þessu unga fólki.

IV.     Yad Ha Shmona

Biðjið fyrir Yad Ha Shmona, Messíanskt samyrkjubú rétt utan við Jerúsalem. Biðjið um blessun andlega, fjárhagslega og samfélagslega. Við höfum nýlega flutt bæna- og undirbúningsmiðstöð okkar þangað og við erum spennt fyrir því sem Guð hefur í hyggju. Við trúum því að eitthvað stórfenglegt muni gerast fyrir Messíanska söfnuðinn hér.

V.    Deila ísraelskra pastora

Biðjið fyrir Landsráðstefnu Ísraelskra Pastora. Það hefur verið deila á milli leiðtoga um hvaða menningu og hefðir Gyðinga ísraelskir messíanskir gyðingar tileinka sér.  (sjá grein hér fyrir neðan)

Bölvun lögmálsins


Við trúum því að ritningin sé samkvæm sjálfri sér frá upphafi til enda. Þrátt fyrir að það séu margir mismunandi höfundar á því 2.000 ára tímabili, þá voru þeir allir innblásnir af sama Anda Guðs. Sannleikurinn andmælir ekki sjálfum sér. Við sjáum lögmál biblíunnar frá 1. Mósebók til Opinberunarbókarinnar.; þau vaxa og þenjast út af sama kjarna.

Því meira sem ég stúdera biblíuna, því betur sé ég hversu áreiðanleg ritningin er. Síðustu þrír kaflar biblíunnar sýna uppfyllingu á fyrstu þremur köflunum: í 1. Mósebók 1 og 2 er sköpunarsagan, Edengarðurinn og eining Adam og Evu. Opinberunarbókin 21 og 22 sýna hina nýju sköpun, endurreisn Eden og brúðkaup Yeshua og dýrðarbrúðar Hans. 1. Mósebók 3 kafli sýnir sigur höggormsins yfir manninum, þegar Opinberunarbókin 20 sýnir sigur Messíasar yfir Satan.

Ritningarstaður sem hefur sýnst þessu mótsagnarkenndur er "bölvun lögmálsins"
Galtabréfið 3:13 - Kristur keypti okkur undan bölvun lögmálsins...

Að hugsa það að lögmálið sé bölvun hefur valdið grundvallarmisskilningi á boðskap Biblíunnar. Páll (Sál) var vitanlega ekki að kalla lögmálið bölvun, heldur að undirstrika það að Messías leysir okkur undan þeirri refsingu sem talað er um í lögmálinu, sem við höfum kallað yfir okkur með synd og óhlýðni.

Þetta er hægt að sýna fram á með því að lesa bæn spámannsins í Daníelsbók. Ég trúi því að Páll hafi haft þennan ritningarstað til hliðsjónar (eða vitnað beint í) þegar hann skrifaði Galtabréfið 3.

Daníelsbók 9:11 - Öll Ísraelsþjóð hefur brotið lögmál þitt, villst af leið og óhlýðnast þér svo að allar bölvanir og eiðar, sem skráðir eru í lögmáli Móse, þjóns Guðs, hafa komið yfir oss því að vér höfum syndgað gegn honum.


Þegar Páll skrifaði um "bölvun lögmálsins" þá var hann að vitna til bænar Daníels þar sem hann biður þess að við frelsumst undan "bölvuninni sem skráð er í lögmálinu". Þegar við sjáum tenginguna milli Galatabréfsins 3 kafla og Daníelsbókar 9 kafla þá hjálpar það okkur að skilja samræmið í ritningunum og að túlka rétt það sem Páll meinti.


Tilbaka í greinasafn 2008


Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.