Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Landið Helga og réttarhöld
©30. november 2008 Asher Intrater

Þessa viku, eftir þjakandi tveggja ára réttarhöld, var það 12 manna hópur alríkisdómara í Dallas Texas sem sakfelldi HLF og fimm leiðtoga af 102 glæpsamlegum athöfnum.

National Review lýsti þessum dómi sem "vitnisburði um seiglu dómskerfisins." Saksóknari gat sýnt fram á að palestínsk yfirvöld líta á HLF sem fjáröflunardeild Hamas. Málið er mikilvæg staðfesting á hryðjuverkalögum Bandaríkjanna sem banna fjárhagslegan stuðning til hryðjuverkasamtaka.
Bræðrasamfélag Múslima - andlegur frontur nútíma jihad - stofnsetti í Bandaríkjunum samfélag Palestínu sem stuðlar að því markmiði Hamas að eyða Ísrael og stofnsetja íslamskt ríki frá ánni Jórdan að Rauðahafinu. HLF annaðist fjáröflun samtakanna. Samtals söfnuðust 12 milljón dalir til samtaka undir stjórn Hamas á Vesturbakkanum og Gaza.
"Markmið jihad er ekki aðeins að styðja hryðjuverkastarfsemi erlendis. Heldur líka til að kynna hugmyndafræði Islam og stigvaxandi upptöku Múslima stjórnarfars í Bandaríkjunum og vesturlöndum. Þessu er fylgt eftir með pólitískri starfsemi múslima hreyfinga sem kynna sig sem mannréttindahópa."
Dallas Morning News lýsti þessu sem "miklum sigri fyrir stjórn George W. Bush, sem hefur barist í dómssölum, gegn fjármögnun hryðjuverkahópa."
Sérstakar þakkir frá okkur fær Donna Diorio, sem stóð fyrir bænabaráttu á meðan réttarhöldin stóðu yfir, mætti daglega í dómssalinn, safnaði upplýsingum og skipulagði bænahópa.


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.