
|
Eldslogar í augum Hans Í Opinberunarbókinni er þrisvar talað um að Yeshua (Jesús) hafi „eldsloga í augunum.“ Þessi kraftur, „pyros“ kraftur Guðs, er sami andlegi eldurinn og birtist Móse í brennandi runnanum (2. Mósebók 3), í eldstólpanum við Rauðahafið (2. Mósebók 14) á Sínaífjalli (2.Mósebók 19), á altarinu í tjaldbúðinni (3. Mósebók 9 og 10), birtist Esekíel í dýrðarskýinu (Esekíel 1) og í strauminum frá hásæti Guðs (Daníel 7). Þessi himneski eldur féll líka á lærisveinana á Hvítasunnudag (Shavuot), Postulasagan 2. Eldurinn hvíldi ekki á þeim í smá stund eins og afmæliskerti á köku, heldur fór innvortis. Ef einhver hefði litið í augu Péturs, gæti sá hinn sami, hafa sé sama eld brenna þar og Jóhannes skírari sá í augum Yeshua. 1. Ástríða Í Opinberunarbókinni, þá er eldurinn sá sami í öllum þrem tilvísununum, en tilgangurinn ólíkur. Fyrst, þá birtist Yeshua, Jóhannesi persónulega, sínum elskaða lærisveini og besta vini. Eldsloginn er ástríða. Opinberunarbókin 1:12-14 Yeshua er ekki að ávíta Jóhannes. Hann er að fara að gefa honum eina stórkostlegustu opinberun allra tíma. Hann elskaði Jóhannes, eins og Davíð elskaði Jónatan. Yeshua hefur þessa ástríðu í elsku sinni til okkar allra sem tilheyra brúði Hans. Þetta er ástríða brúðgumans í Ljóðaljóðunum (Ljóðal. 8:6) Á hebresku er þetta kallað: „Shalhevet-Yah“. Afprýðisemi og ákafi: þetta er ást í sinni hreinustu og tilfinningaríkustu mynd. 2. Hreinleiki Í annað sinn er talað um eldinn í skilaboðum Yeshua til safnaðarins í Þýatíru. Þrátt fyrir að Hann elski líka fólkið þar, þá ávítar Hann það fyrir málamiðlun í siðferði. Sérstaklega vegna þess að fólkið leyfði kynferðislegt siðleysi, falska spádóma og anda Jessebel í söfnuðinum. Opinberunarbókin 2:18-20 Sami eldur Guðs og fyllir okkur af guðdómlegri ástríðu, hreinsar líka frá synd. Vitaskuld getur sami eldur og eldar matinn þinn, líka brennt þig á hendinni. Krafturinn sem gerði Pétri kleift að reisa upp dauða (Post. 9:40), varð þess valdandi að aðrir duttu niður dauðir við prédikun hans. (Post. 5:5, 10). 3. Refsing Þriðja skiptið er jafnvel enn áhrifaríkara: himnarnir opnast og Yeshua kemur niður í endurkomu sinni, leiðandi herfylkingar Guðs. Hér kemur hann ekki til að hreinsa heldur til að refsa. Það er ekki lengur tími til iðrunar. Hann hefur komið til að eyða óvinum Guðs. Opinberunarbókin 19:11-15 Að síðustu mun Satan, anti-kristi og öllum þeim sem hafa verið andsnúnir vilja Guðs verða kastað í eldsdýkið (Opinb. 19:20, 20:10, 20:15). Djöfullinn mun ekki ríkja í eldsdíkinu, hann verður kvalinn þar. Eldur helvítis er reiðieldur Guðs (5. Mósebók 32:22). Skilningur okkar á refsingu Guðs í eldinum, tendrar hjá okkur hreinan, sannan og eilífan ótta gagnvart heilagleika Guðs og mikilleik (Lúkas 12:4, Sálm. 19:9). Gluggi og Spegill Jóhannes sá eldsloga í augum Yeshua. Auga er með holu í miðjunni – sjáaldur, sem er svipað og ljósop á myndavél. Þetta er einskonar gluggi. Uppspretta eldslogans er ekki í augum Yeshua, heldur í hjarta Hans. Eldurinn brennur djúpt í sálu Hans (Lúk. 12:49) og þráir að tendrast í hverju og einu okkar. Augað hefur líka augastein sem hylur hornhimnuna, eins konar spegil. Þegar þú horfir í augun á einhverjum þá sérðu þína eigin mynd endurspeglast. Þegar við horfum í augu Yeshua, þá mun eldurinn sem er innra með Honum, flæða í gegnum okkar augu, inní sálu okkar. Þessi orkuflutningur gerist ekki í gegnum okkar náttúrulegu augu, heldur andlegu (Efesus 1:18). Sumt fólk fer á ráðstefnu eftir ráðstefnu til að fá eld Guðs. Samt stendur okkur til boða afdráttarlaus, persónulegur aðgangur að eldi Guðs, hvenær sem er. Það eina sem við þurfum að gera er að loka okkar líkamlegu augum, íhuga útskýringar ritninganna á eldslogunum í augum Yeshua, sjá fyrir okkur hvernig hann horfir í augu okkar, augliti til auglitis; eldur andans mun byrja að flæða frá Hans sál, yfir til okkar. Augun eru staðsett fyrir miðju andliti. Þegar við íhugum skínandi andlit Hans, þá ummyndumst við í sömu mynd (2. Kor. 3:18). Þessi andlega ummyndun, sem á sér stað þegar við hugleiðum dýrð Guðs í ásjónu Yeshua, er lykillin að því að skilja hvað felst í blessunarorðunum „Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir þig“ (4. Mós. 6:25). Reyndu að eyða tíma á hverjum degi í að hugleiða eldslogann í augum Yeshua. Megi sá dásamlegi andlegi eldur ástríðu og hreinleika tendrast innra með þér! Tilbaka í greinasafn 2008 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |