|
Daníel spámaður og andleg barátta Mið-Austurlanda Í þessari viku eru 7 ár liðin frá hryðjuverkaárásinni á World Trade Center. Það er komi tími til að Bin Laden og Al Zawihiri verði handteknir. Ég trúi því að það séu andleg djöfulleg öfl sem fela þá. Jesaja 25:7 - Og hann mun afmá á þessu fjalli skýlu þá, sem hylur alla lýði, og þann hjúp, sem breiddur er yfir allar þjóðir. Biðjum NÚNA að þessi hjúpur myrkursins verði afhjúpaður, þannig að felustaður þeirra opinberist. Í Daníelsbók kafla 7-11, þá sjáum við að spámaðurinn á í andlegri baráttu með föstu, iðrun, fyrirbæn, draumum og sýnum gegn myrkraöflunum sem eru kölluð prinsar Persíu og Medíu. Þessi andlega barátta heldur áfram í dag í stríðinu gegn Íslams Jihad og hryðjuverkum. Daníelsbók 10:13 - En verndarengill Persaríkis stóð í móti mér tuttugu og einn dag, en sjá, Míkael, einn af fremstu verndarenglunum, kom mér til hjálpar, og hann skildi ég eftir þar hjá Persakonungum. Og nú er ég kominn til að fræða þig á því, sem fram við þjóð þína mun koma á hinum síðustu tímum, því að enn á sýnin við þá daga. Jafnvel hinn mikli YHVA engill talaði um erfiðleika baráttunnar. Sýnin var ekki einungis fyrir þá tíma sem Daníel var uppi heldur einnig fyrir endatímana, fyrir okkar tíma. Þessi andlega barátta mun eiga sér stað allt þar til endurkoman verður. Þökkum Guði fyrir að sífellt færri falla í stríðinu í Írak og fyrir eyðileggingu bústaða hryðjuverkamannanna og leiðtoga þeirra. Flestar kannanir sýna að það hefur átt sér stað viðsnúningur til sigurs og stöðugleika síðast liðna mánuði. Messíanskir pastorar Þessa viku voru margir sem sóttu kappræður milli Messíanskra pastora og hlutverks þeirra varðandi rabbía kennslu og Gyðinglegra hefða í samhengi við trú okkar á Messiah Yeshua (Jesús) – um 160 leiðtogar mættu. Kappræðurnar voru tilfinningaríkar en vel hugsaðar. Höldum áfram að biðja fyrir einingu á milli trúaðra hér; fyrir starfi Messíanska Bandalagsins í Ísrael ( Messianic Alliance of Israel); leiðtogum okkar; tölvupóst sambandi okkar; og jafnvægi til allra varðandi málefni Gyðinglegra hefða og trúar. Lærisveina- og bænamiðstöð Vinnan við nýju bæna-lofgjörðar-lærisveinamiðstöðina gengur vel. Við gerum ráð fyrir að vígja bænaherbergið í lok október. Við erum spennt yfir samstarfi ýmissa Messíanskra safnaða og fyrirtækja sem á sér stað hér í “Yad Hashmona”, messíanskt samyrkjubú rétt utan við Jerúsalem. Eitthvað sérstakt er að eiga sér stað. Við sjáum fram á aukningu í öllu starfinu, þar á meðal í trúboði og sölu. Biðjið áframhaldandi fyrir hópnum okkar og starfsfólki, vernd gegn andlegum og líkamlegum árásum – allir eru á útopnu. Kristnir í Líbanon Biðjið fyrir þeim trúuðu sem eru í Líbanon. Við þráum að standa með þeim andlega og veraldlega. Þessa viku báðum við með vini okkar og sendiboða “O” þegar hann snýr aftur til Líbanon. “O” flytur okkur fréttir af gegnumbroti í trúboði til Araba og Múslima um öll Mið-Austurlönd. Við erum að byggja upp traust og sambönd við andlega bræður okkar og systur þar. Nýir trúaðir í Ahavat Yeshua Sameinist með okkur í bæn fyrir nýfrelsuðum einstaklingum, þeim sem enn hafa ekki tekið skrefið til trúar en koma í heimsókn, og fyrir nýjum ungum lærisveinum í söfnuðinum Ahavat Yeshua í Jerúsalem. Það voru níu einstaklingar teknir inn síðastliðna viku af Pastor Eddie og ungum trúboða sem heitir Shmuel. Tilbaka í greinasafn 2008 Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |