Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Jóhannesarguðspjall 17 Bæn - Annar hluti
©14. december 2008 Asher Intrater

Æðsta prest bæn Yeshua í 17 kafla Jóhannesarguðspjalls er hægt að skipta í þrjá hluta.
Fyrst biður Hann fyrir sér sjálfum, að Hann verði dýrlegur með þeirri dýrð sem Hann hafði hjá Föðurnum áður en heimurinn var til.(vers 1-5)
Síðan biður Hann fyrir lærisveinum sínum (vers 6-19)
Síðan biður Hann fyrir því að lærisveinar Hans hafi áhrif á allan heiminn (20-26)

Jóhannesarguðspjall 17 kafli er bæn fyrir alþjóðlegum líkama hinna trúuðu; á sama tíma og þetta er bæn um að Líkaminn verði notaður til að ná til og frelsa allan heiminn. Jóh. 17 er bænaáætlun Yeshua fyrir alheimstrúboði.

Í Jóhannes 3:16 sjáum við líklega dýpsta kall Guðs hjarta - að allir menn frelsist. "Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf."

Jóhannes 17:9 - "Ég bið ekki fyrir heiminum..." Ef Guð elskar heiminn svona mikið, af hverju er þá ekki Yeshua að biðja fyrir heiminum? Svarið er áætlun. Heimurinn þarf að frelsast. En fólkið í heiminum er ekki mikið næmt fyrir bænum. Það þarf að sjá og heyra lifandi vitnisburð fagnaðarerindisins.

Þeir sem eru trúaðir þurfa ekki að frelsast. Þeir eru næmir fyrir bænum og geta vitnað um fagnaðarerindið um allan heim. Yeshua bað að samfélag trúaðra yrði vitnisburður fyrir heiminn. Það er markviss bæn um trúboð um allan heim.

Jóhannes 17:21 – "til þess að heimurinn trúi, að þú hefur sent mig."
Jóhannes 17:23 – "til þess að heimurinn viti, að þú hefur sent mig."

Einföld og dásamleg áætlun. Yeshua biður að Hann sjálfur verði sýnilegur í dýrð. Síðan biður Hann fyrir lærisveinum Hans að þeir gangi í trú og kærleika. Hann biður að lærisveinar Hans hafi áhrif á aðra. Og að lokum biður Hann að í gegnum vitnisburð kærleika og einingar innan Líkamans, þá muni allur heimurinn komast til trúar.

Við skulum nota sömu áætlun.
Biddu fyrst fyrir þér að þú gangir í náð Guðs og dýrð.
Síðan skaltu biðja fyrir samfélagi trúar um allan heim.
Að lokum, biddu fyrir því að allur heimurinn frelsist.

Jóhannes 17 er bæn um að alheimssamfélag trúarinnar verið notað til að breiða út fagnaðarerindið. Jóhannes 17 er leið Yeshua til að biðja fram uppfyllingu á Jóhannes 3:16

Fréttir
Spænskir Gyðingar -
Á þrettándu og fjórtándu öld, fjölgaði mikið í samfélagi Gyðinga á Spáni og Portúgal. Þessi fjölgun var það mikil að Kaþólskum yfirvöldum fannst sér ógnað. Afleiðingin var ofsóknir, rannsóknarrétturinn, nauðug trúskipti og að lokum útlegð frá Spáni árið 1492 og Portúgal árið 1498.
Enginn veit með vissu hversu margir Gyðingar snéru til kaþólskrar trúar á þessum árum. Hinsvegar sýna nýlegar niðurstöður rannsóknar á Y-litningnum meðal karla á Spáni og Gyðingum, um 20% samsvörun. Þessar rannsóknir benda til þess að fjöldi Gyðinga sem snéri frá trú sinni á 14 öld séu miklu fleiri en áður var talið og fjöldi spænskra- og portúgalskra mælandi einstaklinga sem eru Gyðingar að uppruna gæti verið 1 af hverjum 5.
JOS, Nigeria (Compass Direct News) - Hneyksli vegna gruns um kosningasvindl snérist upp í óeyrðir í þessari borg sem staðsett er mitt á milli Islam í norðri og Kristninnar í suðri. Í morárásum múslima á kristna og eignir þeirra 28-29 nóvember voru 6 prestar og amk 500 aðrir einstaklingar drepnir og 40 kirkjur eyðilagðar. Lögregla og herlið drap um 400 ærða múslima í tilraun við að bæla niður óeirðirnar og Islamistar skáru og stungu til bana um 100 kristna.
Kosningar í Ísrael - Gideon Saar náði fyrsta sæti á eftir Benyamin Netanyahu í prófkjöri Likud-bandalagsins. Gideon Saar hefur verið virkur meðlimur í Knesset varðandi málefni evangelískra kristinna, hann hefur einnig góðan orðstír innan kristinna samfélaga. Þjóðarkosning fer fram í febrúar.
Indland - Í þessari viku eru nokkrir af meðlimum okkar þátttakendur í trúboði sem S og C standa fyrir á Goa strönd. Goa er vinsæll staður meðal ungra Ísraela sem eru að leita eftir skemmtun, synd og andlegri upplifun. Jerusalem Post sagði frá því í þessari viku að yfirvöld á Indlandi hafa gefið út viðvörun þess efnis að Al Qaida stefni að hryðjuverkaárás á Goa.

Sáttmálsörkin til Jerúsalem

Ég sé samhljóm í því þegar Davíð konungur kom með sáttmálsörkina til Jerúsalem (2. Samúelsbók 6) og Messíanskra samtaka nútímans sem vilja koma með fagnaðarerindið til borgarinnar.
Við lesum um það þegar Ússa rétti út höndina og snerti Örkina sem var við það að renna af vagninum. Hann lést samstundis. Þetta gerðist vegna þess að þeir virtu ekki mikilvægi lögmáls Guðs sem sagði að það ættu að bera örkina á stöngum.
Í seinni tilrauninni, þá tók Davíð af sér konunglegu klæðin og dansaði taumlaust á götunum með fólkinu. Míkal eiginkonu hans fannst þetta mjög óviðeigandi. Henni var refsað með ófrjósemi, vegna þess að hún virti ekki mikilvægi þess að tjá Drottni taumlausa lofgjörð.
Þessi tveir atburðir sýna okkur fram á tvö grundvallaratriði sem fylgja boðun fagnaðarerindisins í Jerúsalem: virðing fyrir lögmáli Guðs og taumlaus tilbeiðsla til Guðs. Á nútímatungumáli getum við kallað þetta tvennt: Gyðinglegar rætur og karismatísk tjáningu.
Sumir vilja karismatíska tjáningu en telja að lögmál Gyðinga sé málinu óviðkomandi. Þeir sem eru á þeirri skoðun gera sömu mistök og Ússa. Aðrir vilja Gyðinglegar rætur en telja að karismatísk tjáning sé tilfinningasemi. Þeir einstaklingar gera sömu mistök og Ússa.
Hinsvegar þráum við hvort tveggja: tjáningu og gjafir Heilags Anda og virðingu gagnvart Gyðinglegum rótum sáttmálans og konungsríkisins.
(Það er áhugavert, að starfið okkar Revive Israel er á stað sem heitir Kiryat Yearim þar sem Örkin var og Ahavat Yeshua söfnuðurinn er staðsettur í miðri Jerúsalem).


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.