Prenta síðu | Heim | Tilbaka í greinasafn
logo

Jóhannesarguðspjall 17 Bæn
©7. december 2008 Asher Intrater

Þessi Æðsta prests bæn Yeshua (Jesú) er mikilvægt viðmiðunarmark fyrir fyrirbiðjendur, uppspretta opinberunar. Margir vitna í Jóh. 17 sem bæn Yeshua fyrir einingu innan kirkjunnar. Sannarlega er það hluti bænarinnar. Hinsvegar er þessi bæn, miklu meira.

Tilvitnunin í að við verðum "eitt" í Honum kemur fimm sinnum fram í Jóh. 17, á meðan tilvísun í dýrð Yeshua og að við verðum dýrleg með Honum kemur fram átta sinnum. Þetta er miklu frekar bæn um að kirkjan verði dýrleg en bæn um einingu innan kirkjunnar.

Umbreyting á skilningi okkar á Jóhannesarguðspjalli 17 gæti valdið gegnumbroti í fyrirbænum um allan heim. Þetta er bæn um að Líkami Messíasar um allan heim komi inní dýrð, hlutskipti og heilagleika.

Það er munur á sameiningu og einingu. Helsta bæn Yeshua var að við yrðum "Eitt" með Honum og Föðurnum. Þetta er bæn um sameiningu við Guð. Að sjálfsögðu gerist það að þegar við verðum eitt með Guði, þá verðum við eitt með hvort öðru. Hinsvegar hefur sameining við Guð, forgang gagnvart einingu við aðra.

Þegar við sjáum fyrir okkur fólk Guðs um allan heim, sameinað í dýrð Guðs, þá mun skilningur okkar á tilgangi Guðs víkka. Pétur skrifaði að við yrðum hluttakendur í guðlegu eðli (2. Pétursbréf 1:4) Páll skrifaði að við myndum fyllast allri Guðs fyllingu (Efesus 3:19)

Jóhannesarguðspjall, kafli 17 er bæn um að við klárum hina miklu skipun um að allur heimurinn komist til þekkingar á að Yeshua er Drottinn (Jóh. 17:21,23). Þetta er bæn um að við uppfyllum bæði boðorðin um að elska Guð og elska hvort annað (Mark. 12. Lúk 10)

Yeshua bað að við mættum líta dýrð Hans. Jóhannes upplifði svar við þessari bæn þegar hann sá Yeshua í allri sinni dýrð í Opinberunarbókinni 1. Dýrð Guðs er krafturinn sem kemur við nærveru Drottins, sem streymir fram sem eldur frá hásæti Hans (Daníelsbók 7:10) Þetta er eins og stærðar skýstrókur af kjarnorku (Esekíel 1). Lærisveinarnir sáu þetta á Ummyndunarfjallinu (Lúk 9, Matt. 17). Þeir upplifðu "tungutal" dýrðarinnar á Hvítasunnudag (Postulasagan 2)

Yeshua sagði að Hann deildi dýrðinni með Föðurnum ÁÐUR en heimurinn var grundvallaður (Jóh. 17:5). Dýrðin var við sköpunina. Dýrð Guðs var krafturinn sem myndaði alheiminn. Þetta er eins og risa-kvasi, eða öfugt svarthol - sem gleypir ekki alheiminn heldur spýtir honum út.

Hversu mikill kraftur er það? Einstein sýndi fram á að orka jafngilti margfeldi massa og ljóshraða í öðru veldi (E = mc2) Ef við tökum allan massa af sköpuðu efni og margföldum með þessari formúlu, þá fáum við sama magn af hreinni orku og þurfti til að skapa alheiminn. Það er kraftur dýrðar Guðs.

Kasams– Samkomulag náðist á þessu ári á milli Ísrael og Hamas um "Regiah" - tíma þar sem engar árásir yrðu gerðar. Hinsvegar í nóvember var 215 Kasam eldflaugum skotið frá Gaza yfir Ísrael.  (þannig fara Hamas með vopnahléssamning)

Hebron– Á þriðjudaginn klukkan 14:30 þá framfylgdu öryggissveitir Ísrael "friði" í Hebron, rýmdu öll hús á landnemasvæðum Gyðinga og negldu aftur hurðir.  Þessi aðgerð tók aðeins 36 (!) mínútur, þrátt fyrir spá um ofbeldisfullan ágreining.

Hins vegar mun málefni Hebron halda áfram að valda átökum milli Ísraela og Palestínumanna, innan samfélags Ísrael og jafnvel á meðal Messíanskra trúaðra. Hér er smá samantekt af málefnum Hebron

Júní. 1967 - Í 6 daga stríðinu, tóku Ísraelar yfir Hebron
Apríl, 1968 - Trúaðir landnemar koma og fagna Páskum og hefja samfélag Gyðinga þar.
Október, 1968 - Palestínskir hryðjuverkamenn kasta handsprengju á meðal Gyðinga sem voru að biðja á Machpela Cabe (þar sem Abraham og Sara eru jarðsett). 47 særðust.
Maí, 1980 - Hryðjuverkamenn skjóta á hóp Gyðinga sem voru á leið til bæna. 6 voru drepnir.
September, 1988 - Hópur Palestínumanna verður fyrir skotárás Rabbi Levinger í miðri Hebron. Einn er drepinn. Levinger er fundinn sekur fyrir dómi í Ísrael.
Febrúar, 1994 - Dr. Baruch Goldstein fer inná svæði Machpela Cabe með sjálfvirkan riffil og drepur 29 Palestínu-múslima sem voru á bæn.
Mars, 2001 - Gyðingabarn, Shalhevet Pas, er drepið af leyniskyttu hryðjuverkamanna.
Nóvember, 2002 - Hryðjuverkaárás drepur 11 ísraelska hermenn, lögreglu og óbreytta borgara
Mars, 2007 - Nokkur hundruð landnemar Gyðinga taka "friðar" hús á landamærum Palestínu í Hebron

Sandra – Í síðustu viku, bjargaði Sandra Samuel, indverskur barna-hjálparstarfsmaður 2 ára gömlum Moishi Holtzberg úr höndum hryðjuverkamanna sem höfðu drepið foreldra hans. Í þessari viku kom hún til Ísrael til að vera viðstödd jarðarförina, en sagði að hennar staður væri hjá Moishe og hún myndi annast hann.

Sandra sagði í viðtali við blaðamann í Ísrael "Ég er kristinn kaþólikki og fyrir mig er það að starfa á meðal Gyðingafjölskyldna gjöf. Ég ólst upp við sögur úr Biblíunni þar sem fjallað er um að Gyðinga sem útvalda þjóð. Ég trúi því að þeir sem hjálpa Gyðingum fái mikla blessun."

Barkat – Nir Barkat, nýr borgarstjóri Jerúsalem, sagði í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð að þó svo að hann sjálfur "veraldlegur", þá hefði afi hans verið fremsti rabbi Lubavitch. Lubavitch voru beinir afkomendur Baal Shem Tov Rebbe, sem eiga að vera beinir afkomendur Davíðs konungs. Með öðrum orðum, Barkat segist vera í beinan ættlegg frá Davíð konungi. Í öðru viðtali sagðist hann sjá sjálfan sig "feta í fótspor Davíðs".


Tilbaka í greinasafn 2008

Biðjið
fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi.