|
Guð og ríkisstjórnir
©9. november 2008 Asher Intrater
Eitt af fyrstu versunum sem við þurfum að þekkja á 21. öldinni er fyrsta versið í 21. kafla Orðskviðanna: “Hjarta konungsins er eins og vatnslækir í hendi Drottins, hann beygir það til hvers, er honum þóknast.” Við skulum hafa hugfast að trúarbæn til Drottins hefur kraft til að snúa við hjörtum kjörinna ráðamanna
Kosningar í Jerúsalem
Á þriðjudaginn verða borgarstjórakosningar í Jerúsalem. Frambjóðendurnir eru tveir: Nir Barkat, íhaldsamur viðskiptamaður sem starfaði áður í hernum og Meir Porush, strangtrúaður Gyðingur sem hefur unnið gegn Messíönskum Gyðingum í Ísrael. (synir okkar eru sjálfboðaliðar við framboð Barkat). Standið með okkur í bæn og föstu, að Guðs vilji nái fram að ganga.
Likud bandalagið
Benjamin Netanyahu fékk mikinn stuðning þessa viku, þegar tveir fyrrum meðlimir Likud bandalagsins, Benny Begin (sonur fyrrverandi forsetisráðherra) og Dan Meridor (fyrrverandi dómsmálaráðherra) ákváðu að ganga aftur til liðs við flokkinn eftir nokkurra ára fjarveru. Netanyahu er fremstur í framboði sem næsti forsætisráðherra í komandi kosningum þann 1. febrúar 2009.
Hótanir gegn trúboði
Nýlega var fimm Messíönskum leiðtogum hér, þmt. mér sjálfum, hótað lögsókn af hendi samtaka sem standa gegn trúboði. Biðjið um visku og vernd okkur til handa, og einnig alla þá sem hafa orðið fyrir árásum, að Guð snúi því sem þeir ætla til ills yfir í gott.
Kosningar í Bandaríkjunum
Hér er úrdráttur úr vangaveltum vinar okkar Francis Frangipane um von og trú varðandi hina nýju ríkisstjórn Bandaríkjanna:
"Má ég minna ykkur á að: framtíð þjóðar okkar er ekki ákveðin í kosningum, heldur af trú þeirra sem eru kosnir. Ef við höldum áfram að þrýsta á Guð, auðmýkjum okkur og gefum ekkert eftir í fyrirbænum, þá getur Guð snúið þessari þjóð til sín á áhrifamikinn og kröftugan hátt.
Sigur Barack Obama hefur fyllt flesta blökkumenn Bandaríkjanna af djúpri gleði. Vissulega er það rétt að blökkumaður kjörinn af meirihluta Bandaríkjamanna frá öllum þjóðfélagsstéttum, er uppfylling á Ameríska draumnum.
Íhugum hollustueiðinn. Hollustueiður okkar er ekki aðeins gagnvart fánanum, heldur “lýðveldinu sem hann stendur fyrir” Hollustueiður okkar er fyrir “eina þjóð undir Guði, óskiptanlega, frjálsa og réttlæti fyrir alla.”
Jafnvel núna, þegar blökkumaður rís upp til að setjast í valdastól þessarar þjóðar, þá rís upp von á stöðum þar sem algjört vonleysi var áður. Þetta gegnumbrot varðandi lækningu milli kynþátta hefur lengi verið á hjarta Guðs.
Þrátt fyrir það hver það var sem var kjörinn forseti, þá eru vandamálin sem Bandaríkin standa frammi fyrir, gífurleg. Efnahagsógn, átök um allan heim auk möguleika á nýju köldu stríði, bíður verðandi forseta. Við verðum að biðja fyrir honum varðandi þessi málefni, því hans árangur verður okkar árangur (Jeremía 29:7)
Hvað um sterka skoðun Obama varðandi rétt kvenna til fóstureyðinga?
Ég var búin að vera kristinn í nokkur ár þegar Heilagur Andi opinberaði fyrir mér hrylling fóstureyðingar. Það gerðist á svipstundu. Kannski var einhver að biðja fyrir mér, og Guð náði í gegn. Á sama hátt trúi ég því að Guð geti náð til forseta okkar. Stöndum í trú að Jesús Kristur geti lyft samvisku Obama upp á þann stað að fóstureyðingar verði vítaverðar fyrir honum. Má ég líka minna á að Ameríka er ekki búin að snúast til frjálsræðis; meirihluti bandaríkjamanna eru enn hægrimenn. Jafnvel í Kaliforníu kusu menn gegn hjónabandi samkynhneigðra.
Hvað um Ísrael? Mun verðandi forseti snúast gegn Gyðingum?
Fyrsti einstaklingurinn sem Obama skipaði í embætti var Rahm Emanuel. Emanuel er mikill vinnuhestur, klár stjórnmálamaður frá Chicago. Þrátt fyrir að vera flokksmaður, þá er hann meira á miðjunni en til vinstri. Það sem þú kannski ekki veist er að hann er Gyðingur. Faðir hann flutti frá Jerúsalem til Bandaríkjanna og var áður meðlimur í Irgun, herská samtök Síonista sem störfuðu á Breska nýlendusvæðinu Palestína á árunum 1931 til 1948. Það er ekkert öruggt að Emanuel muni verja Ísrael, en ég trúi því ekki að Rahm Emanuel, sem á fjölskyldu sem er mjög virk í synagogum Chicago, muni yfirgefa Gyðinga eða Jerúsalem.
Ég er ekki að segja að ég samþykki allt sem Obama stendur fyrir í pólitík og siðferðislega, en mundu að eitt af hann markmiðum var að færa Guð og trúarbrögð inní flokk Demókratanna. Hann barðist gegn áhrifum þeirra innan flokksins sem vildu hafna kristindómnum og hann sóttist eftir því að gera Demókrataflokkin að stað þar sem hægt væri að iðka trú og hún jafnvel blómstrað.
Kæru vinir, það er ekki tími til að örvænta, það er tími til að biðja með visku og von. Ef allt sem þú sérð er “ský jafnstórt og mannshönd” þá skaltu biðja með sömu trú og Elía, að mikil úthelling náðar mætti eiga sér stað. Gefum Guði tækifæri á að færa inní heim okkar blessun og um-beðinn raunveruleika."
Hægt er að nálgast upplýsingar um starf Francis á heimasíðunni www.frangipane.org
Tilbaka í greinasafn 2008
Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |