Hryðjuverkaárás í Indlandi
©10. september 2008 Asher Intrater
Hér er samantekt frá fjölmiðlum Ísraela og alþjóða-fjölmiðlum varðandi harmleikinn í Mumbai:
- 24. september - Bandarískur yfirmaður CIA í Deli átti fund með leiðtogum öryggiseftirlits Indlands og sagði frá því að hryðjuverkamenn frá Pakistan væru að þjálfa í búðum sem svipaði til borgarinnar og á bátum út frá ströndinni, og gaf þannig í skyn mögulega áætlun um árás á Mumbai frá vatninu.
- 18. nóvember - Öryggiseftirlit Indlands gaf út viðvörun til strandgæslunnar, að vera á varðbergi gagnvart mögulegum bátum frá Pakistan og Karachi héraði.
- 21. nóvember - hópur 10 hryðjuverkamanna fór í bát frá Karachi héraði, sótti vopn og skotfæri á leiðinni.
- 22. nóvember - Tveir aðrir hryðjuverkamenn skrá sig á Taj Mahal hótelið í Mumbai, þeir fara í herbergi 630 og safna saman skotvopnum þar.
- 23. nóvember - hryðjuverkahópurinn í bátnum frá Karachi ná indverskum fiskibát, skera fjóra sjómenn á háls og skipa skipstjóranum að sigla þeim til Mumbai.
- 26. nóvember - hópurinn kemur að strönd Mumbai. Hryðjuverkamennirnir fara á þremur gúmmíbátum að ströndinni. Þeir skipta sér upp í fjóra hópa 4-2-2-2. Fjögurra manna hópurinn fer á Taj Mahal hótelið. Tveir fara í „Chabad“ hús Gyðinga. Tveir taka leigubíl til Shivaji lestarstöðvarinnar (þar sem þeir skutu með vélbyssum og köstuðu handsprengjum á saklausa ferðamenn.)
- 27. nóvember - klukkan 11 að morgni, eftir að hafa leynst alla nóttina í einu herbergi "Chabad" hússins, tókst indverskri barnfóstru, Söndru, að ná Moishe litla og flýja í öruggt skjól.
- 28. nóvember - búið er að drepa alla hryðjuverkamennina nema einn, Azam Amir Kasab, sem náðist á flótta. Kasab játaði að hann og félagar hans hafi ætlað að drepa eins marga og mögulegt væri, af handahófi en voru samt með skotmarkið á hvítum ferðamönnum og Gyðingum.
- Kasab játaði einnig að hryðjuverkin væru fjármögnuð af indverskum milljónamæring og svartamarkaðs athafnamanninum Dauod Ibrahim. Ibrahim hefur verið lykilstuðningsmaður Al Qaida.
- Árásirnar - 10 staðsetningar á einni nóttu - þar sem 195 féllu og 327 særðust - er ekki einstæður atburður í Indlandi. Frá því árásirnar voru gerðar á Tvíburaturnana í Bandaríkjunum hafa eftirfarandi árásir verið gerðar í Indlandi:
- 1. október, 2001, bygging Kasmír samkundunnar - 35 drepnir
- 13. desember, 2001, bygging Deli þingsins - 7 drepnir
- 24. september, 2002, Akshardam musterið - 31 drepinn
- 13. mars, 2003, farþegalest í Mumbai - 11 drepnir
- 14. maí, 2003, herbúðir Jammu, konur og börn - 30 drepnir
- 25 ágúst, 2003, bílsprengja í Mumbai - 52 drepnir
- 15. ágúst, 2004, barnaskóli í Assam - 16 drepnir
- 29. október, 2005, sprengja í Deli - 70 drepnir
- 7. mars, 2006, Vanassi lestarstöðin - 21 drepinn
- 11. júlí, 2006, háannatími í kvöldlest í Mumbai - 209 drepnir
- 8. september. 2006, Sprengja í Malegaon - 37 drepnir
- 25. ágúst, 2007, Sprengja á veitingastað í Hyderabad - 42 drepnir
- 13. maí, 2008, Sprengja í Jaipur - 63 drepnir
- 26. júlí, 2008, Sprengja í Ahmedabad - 29 drepnir
- 13. september, 2008, Sprengja á markaði í Deli - 21 drepinn
- 21. október, 2008, Sprengja í Imhal- 17 drepnir
- 30. október, 2008, Sprengja í Assam - 77 drepnir
Íslamskt Jihad er alþjóðleg hreyfing - samstillt, skipulögð og vel fjármögnuð. Markmiðið er að eyða vestrænni menningu, drepa kristna trúboða og eyða Ísrael. Þetta á sér djúpar rætur innan trúar Islam. Hryðjuverk er hluti af Jihad og Jihad er hluti af Islam.
Munnleg fordæming Obama á árásina nær ekki þeirri tegund mótstöðu sem þarf til að halda aftur af þessari alheimsplágu. Við skulum biðja fyrir múslimum um allan heim, að þeir snúi sér frá þessu brjálæði og finni náð Yeshua (Jesú). Við skulum einnig biðja að stjórnvöld um allan heim og leiðtogar lögreglu berjist gegn hryðjuverkum.
Tilbaka í greinasafn 2008
Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |