|
Heilagur Andi, Fagnaðarerindið og hefðir Gyðinga
©25 júní 2008, Asher Intrater
Það eiga sér stað deilur á milli safnaðarleiðtoga í Ísrael varðandi gyðinglegra hefða og kennslu Rabbía til Messíanskra Gyðinga. Mín skoðun er sú að við þurfum að vera 1) kröftug í Heilögum Anda, 2) full djörfungar við að boða fagnaðarerindið og 3) með jafnvægi í notkun gyðinglegra hefða.
Hér er vitnisburður sem getur uppörfað þig og þjónað sem dæmi á okkar viðhorfi. Þessa viku komu þrír menn til okkar í söfnuðinn í fyrsta sinn, þeir voru allir fæddir í Ísrael með orthodox trúarbakgrunn. Einn hafði tekið á móti Drottni (hafði fyrst hitt Succat Hallel, en ekki komið í söfnuðinn). Annar kom með S‘ og M‘. Sá þriðji kom eftir nokkur samtöl við mig.
Þeir voru mjög hikandi þegar þeir komu, svo vægt sé til orða komist. En þegar þeir komu innfyrir þá sáu þeir að fólk umgekkst þá í kærleika og viðurkenningu. Þegar við byrjuðum að lofa Drottinn þá var það bara tímaspursmál hvenær þeir fengju snertingu Heilags Anda. Við báðum fyrir lækningu, ásamt því að lesa uppúr Torah. Ég kenndi út frá Jóhannes 10 þar sem Yeshua (Jesús) segir að hann sé eitt með Guði, og út frá Jóhannes 17 þar sem Yeshua biður þess að við verðum eitt með Honum og Föðurnum.
Það var okkur mikið gleðiefni þegar þessir ófrelsuðu orthodox menn komu fram eftir prédikunina og báðu opinberlega frelsisbæninga, tóku á móti Yeshua sem Drottni og Frelsara, lýstu yfir trú á dauða Hans og upprisu. Það þarf ekki að taka það fram hversu mikið við glöddumst með þeim.
Hvað gerði þessum mönnum kleift að taka á móti Drottni? Það var ekki hefðin, heldur kraftur Heilags Anda. (Það var áhugavert að einn mannanna féll í gólfið þegar við báðum fyrir honum, jafnvel þó svo að enginn annar í söfnuðinum hafði fallið í gólfið og hann hafði aldrei séð neitt slíkt áður. Hann bara gat ekki staðið undir krafti Heilags Anda)
Hins vegar er staðreyndin sú, að vegna þess að við erum með ákveðnar hefðir á samkomunum, þá leið þessum mönnum eins og heima og þeir gátu opnað hjörtu sín. Við tölum bara herbresku í söfnuðinum okkar, og margir meðlimir eru vel lærðir í kenningum Rabbía. Tal, frá samyrkjubúi og trúrækinni fjölskyldu, var sérstaklega hjálplegur við að ræða um Messías við þessa menn.
Gyðinglegar hefðir eru ekki boðskapur okkar. Boðskapur okkar er Yeshua. Hins vegar geta gyðinglegar hefðir skapað réttar aðstæður til að boða fagnaðarerindið. Við skulum ekki rugla saman boðskapnum og aðstæðunum. Ef ég vil virkilega að einhver frelsist, þá mun ég aðlagast menningu og umheimi til að boða fagnaðarerindið. Hins vegar ef menningarheimur skyggir á boðskapinn sjálfan, þá hefur eitthvað mistekist.
Hvernig finnum við jafnvægi þarna á milli? – með því að leggja áherslu á kærleika, fagnaðarerindið og Heilagan Anda. Þegar þú elskar einhvern þá viltu skilja viðkomandi og eiga samskipti við hann. Þegar þú boðar fagnaðarerindið þá viltu taka burt sérhverja hindrun sem gæti staðið í veginum. Þegar þú nýtur leiðsagnar Heilags Anda, þá greinir þú hvað er rétt og rangt í sérhverjum aðstæðum. Við höfum frjálsræði til að vera sveigjanleg í menningarlegri tjáningu. Við höfum dómgreind til að vera í jafnvægi.
1. Korintubréf 9:20-21 – „Ég hef verið Gyðingum sem Gyðingur til þess að ávinna Gyðinga. Þótt ég lifi ekki eftir lögmáli Móse breyti ég eftir því til þess að ávinna þá sem fara eftir því. 21Til þess að ávinna þá sem þekkja ekki lögmál Móse breyti ég ekki eftir því enda þótt ég sé ekki laus við lögmál Guðs heldur bundinn lögmáli Krists.“
Yeshua aðvaraði okkur um að vera meðvituð um „súrdeig Faríseanna“ Það eru vissulega hættuleg öfl stolts, bókstafshlýðni, afneitun á Yeshua, afneitun á Messíönskum Gyðingum og fordómar gegn heiðingum í sumum kennslum Rabbía / gyðingapresta (Matteus 23).
Hins vegar aðvaraði Yeshua okkur einnig um „súrdeig Heródesar (Mark. 8:15)“ sem við gætum skilið sem veraldlegt þjóðfélag. Á sama hátt og það eru hræsnarar á meðal trúarleiðtoga Gyðinga, þá eru hræsnarar á meðal kristinna leiðtoga. Á sama hátt og það er hætta í samfélagi trúaðra Gyðinga, þá er hætta í veraldlegu samfélagi Gyðinga.
Heyrir þú hrópið í hjörtum lærisveinanna þegar þeir spurðu „ætlar þú á þessum tíma að endurreisa ríkið handa Ísrael?“ – Post. 1:6 Sérðu hversu mikið þeir elskuðu fólkið? – Hversu mikið þeir þráðu að sáttmáli Guðs yrði uppfylltur fyrir þjóðina okkar? Við viljum að öll loforð spámannanna og lögmálsins verði að veruleika. Hvernig gerist það? „þér munuð öðlast kraft er heilagur andi kemur yfir yður og þér munuð verða vottar mínir í Jerúsalem og allri Júdeu, í Samaríu og allt til endimarka jarðarinnar.“ – Post. 1:8
Leiðbeiningar Yeshua til lærisveinanna að fyllast Heilögum Anda og fara með fagnaðarerindið um allan heim, var svarið við ákalli þeirra um endurreisn þjóðar okkar. Stjórnmál, trúrækni, hernaður og efnahagsmál getur ekki komið á biblíulegri endurreisn. Fyrst þurfum við að leggja áherslu á Heilagan Anda, síðan að boða fagnaðarerindið um Yeshua. Ef við gerum þetta, þá mun Guð endurreisa allt sitt konungsríki í Ísrael og allar þjóðir.
Hróp okkar fyrir þjóðina er það sama og lærisveina Yeshua. („Endurreistu konungsríki þitt í Ísrael“) Svar Hans til okkar er það sama og Hann gaf þeim („Fyllist Heilögum Anda og boðið fagnaðarerindið um allan heim“)
Sameinist með okkur í bæn og trú. Við þörfnumst ykkar og metum ykkur mikils.
Tilbaka í greinasafn 2008
Biðjið fyrir starfi okkar í Ísrael, fyrir trúboði meðal innfæddra, fjölgun á messíönskum söfnuðum, Lærisveinaskólanum, spámannlegri lofgjörð og bænavakt
og fjárhagslegri aðstoð fyrir þurfandi. |